
Bændasamtök Íslands
Bændasamtök Íslands eru hagsmunafélag bænda á Íslandi. Sterk og öflug Bændasamtök eru lykillinn að því að rödd bænda heyrist skýrt og greinilega þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þeirra.
Meginmarkmið samtakanna er að beita sér fyrir bættri afkomu bænda, betri rekstrarskilyrðum í landbúnaði auk þess að miðla upplýsingum og sinna fræðslu til sinna félagsmanna.
Þá gefa Bændasamtökin út Bændablaðið, sem er mest lesna dagblað landsins en því er dreift endurgjaldslaust í 33 þúsund eintökum víða um land, m.a. til allra félagsmanna í BÍ.

Lögfræðingur
Bændasamtök Íslands leita að öflugum einstaklingi til að sinna fjölbreyttum verkefnum á sviði lögfræði. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem reynir á fagmennsku, lausnamiðaða hugsun og góða samskiptahæfni.
Um er að ræða tímabundið starf til eins árs með möguleika á framlengingu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hagsmunagæsla fyrir landbúnaðinn
- Lögfræðileg ráðgjöf til stjórnenda og félagsmanna
- Samskipti við opinbera aðila og aðra samstarfs- og hagsmunaaðila
- Undirbúningur gagna og gerð umsagna
- Þátttaka í stefnumótun
Menntunar- og hæfniskröfur
- Meistarapróf í lögfræði
- Reynsla af lögfræðistörfum nauðsynleg
- Þekking og færni í stjórnsýslurétti
- Þekking á málefnum landbúnaðarins kostur
- Þekking á Evrópurétti kostur
- Mjög góð hæfni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
- Mjög góð hæfni til að starfa í teymi og lipurð í mannlegum samskiptum
- Geta til að vinna undir álagi
- Sjálfstæði, sjálfstraust og frumkvæði í vinnubrögðum
Auglýsing birt10. júní 2026
Umsóknarfrestur25. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Borgartún 25, 105 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (6)





