

Hefur þú áhuga á alþjóðlegum efnahagsmálum?
SEÐLABANKI ÍSLANDS óskar eftir að ráða sérfræðing til starfa í deild alþjóðasamskipta, miðlunar og stefnumótunar á sviði skrifstofu bankastjóra.
Skrifstofa bankastjóra hefur miðlæga yfirsýn yfir starfsemi bankans, styður við störf bankaráðs, nefnda bankans auk seðlabankastjóra og varaseðlabankastjóra. Deild alþjóðasamskipta, miðlunar og stefnumótunar ber ábyrgð á ráðgjöf og þjónustu við framangreinda aðila, sem meðal annars felst í undirbúningi funda, erinda, ákvarðana, verkefnastjórn, undirbúningi nefndarstarfs og bankaráðsfunda. Deildin fer einnig með alþjóðasamskipti svo sem þátttöku í stefnumótun á sviði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, umgjörð stjórnarhátta, rekstraráhættu og verkefnastýringu verkefnasafns, innra upplýsingaflæði ásamt ytri upplýsingamiðlun.
- Þáttaka í alþjóðasamstarfi innan kjördæmis Norðurlanda og Eystrasaltsríkja hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
- Regluleg samskipti við og fundir með sérfræðingum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
- Skipulag reglulegra heimsókna og árlegrar úttektar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi og fleiri alþjóðlegra aðila.
- Greiningar á sviði alþjóðlegra efnahagsmála, peningastefnu og fjármálastöðugleika.
- Undirbúningur kynninga og annars efnis fyrir varaseðlabankastjóra um efni tengt alþjóðlegum efnahagsmálum, peningastefnu og fjármálastöðugleika.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi svo sem á sviði hagfræði eða fjármála.
- Góð greiningarfærni og hæfni til að vinna markvisst úr gögnum og upplýsingum.
- Kunnátta á myndrænni framsetningu gagna.
- Þekking og reynsla af alþjóðamálum.
- Reynsla af alþjóðlegum samskiptum og stefnumótun á því sviði er kostur .
- Hæfni til að tjá sig og miðla upplýsingum í ræðu og riti á íslensku og ensku.
- Góð færni í mannlegum samskiptum og árangursríkri teymisvinnu.
- Fagleg vinnubrögð, umbótahugsun og metnaður til að ná árangri í starfi.
Enska
Íslenska










