Fjármála og efnahagsráðuneytið
Fjármála og efnahagsráðuneytið
Fjármála og efnahagsráðuneytið

Sérfræðingur í fjármálum, greiningum og áætlanagerð

Fjármála- og efnahagsráðuneytið leitar að öflugum sérfræðingi til að sinna spennandi verkefnum á sviði áætlanagerðar og greininga á fjármálum hins opinbera. Markmið starfsins snýr að auknum árangri og hagkvæmni í rekstri ríkisins, auk stefnumótunarvinnu í samstarfi við lykilaðila í opinberum fjármálum. Viðkomandi þarf að vera lausnamiðaður, hafa góða greiningarhæfni og sýna sjálfstæði og frumkvæði í starfi. Starfið krefst samskiptahæfni og getu til að ávinna sér traust samstarfsaðila.

Starfið er á skrifstofu opinberra fjármála sem hefur yfirumsjón með stefnumörkun og áætlanagerð í opinberum fjármálum, annast verkstjórn, ráðgjöf og eftirlit með gerð fjármálaáætlunar og fjárlaga og ber ábyrgð á samhæfingu opinberra fjármála.

Helstu verkefni og ábyrgð

·       Ááætlanagerð  (m.a. fjárlög og fjármálaáætlun).

·       Samvinna við fagráðuneyti og þátttaka í útgjaldaathugunum og stefnumótun fyrir málefnasvið og málaflokka ráðuneyta.

·       Greiningar á lykilupplýsingum í rekstri og starfsemi ríkisins, ásamt horfum og þróun til lengri tíma.

·       Þróun reiknilíkana og gagnasafna er tengjast áætlanagerð.

·       Yfirferð á fjárhagslegum skuldbindingum vegna samninga og lagafrumvarpa.

Menntunar- og hæfniskröfur

»         Meistaragráða sem nýtist í starfi , t.d. á sviði hagfræði, viðskiptafræði  eða verkfræði.

»         Þekking og reynsla á fjármálum og áætlanagerð.

»         Reynsla af greiningu fjármálalegra og annarra tölulegra upplýsinga.

»         Góð  færni í hagnýtingu gagnavinnsluforrita til að greina og miðla tölulegum upplýsingum.

»         Lausnamiðuð hugsun, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum, auk hæfni til að taka virkan þátt í teymisvinnu.

»         Þekking og reynsla af stefnumótun og árangursstjórnun er kostur.

»         Þekking á efnahagsmálum og starfsemi ríkisins er kostur.

»         Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti er nauðsynlegt.

Auglýsing birt22. október 2025
Umsóknarfrestur6. nóvember 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Reykjavík, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar