

Samfélagsmiðla- og markaðssérfræðingur hjá Hagkaup
Viltu skapa efni sem fólk stoppar við?
Hagkaup leitar að skapandi og drífandi samfélagsmiðla- og markaðssérfræðingi í öflugt markaðsteymi.
Við leitum að einstaklingi sem skilur samfélagsmiðla, hefur gott auga fyrir efni og kann að breyta hugmyndum í sterkt myndefni og sögur. Jafnframt þarf viðkomandi að hafa góða greiningarhæfni, kunna að lesa í gögn og nýta þau til að þróa efni og bæta árangur.
- Umsjón og þróun samfélagsmiðla Hagkaups.
- Hugmyndavinna, framleiðsla og birting efnis fyrir Instagram, TikTok, Facebook og aðra miðla.
- Upptökur, myndvinnsla og klipping myndbanda og annars stafræns efnis.
- Textagerð og þróun efnis í takt við vörumerki Hagkaups.
- Greining á árangri, miðlum og hegðun notenda og nýting gagna til að bæta efni og árangur.
- Þátttaka í markaðsherferðum, viðburðum og kynningum.
- Samstarf við áhrifavalda, birgja og aðra samstarfsaðila.
- Fylgjast með straumum, prófa nýjar leiðir og koma hugmyndum hratt í framkvæmd.
- Reynsla af Meta Business Suite, TikTok, CapCut, Adobe Creative Cloud eða sambærilegum verkfærum er kostur
Háskólamenntun á sviði markaðsfræði, samskipta eða sambærilegt er kostur, en sambærileg starfsreynsla kemur einnig til greina.
Hjá Hagkaup færðu tækifæri til að vinna með einu þekktasta vörumerki landsins í metnaðarfullu markaðsteymi þar sem hugmyndir fá að verða að veruleika.
Við vinnum hratt, prófum nýja hluti, lærum af gögnunum og viljum skapa markaðsefni sem vekur athygli, veitir innblástur og skilar árangri.
Ef þú hugsar bæði skapandi og analytískt og vilt hafa áhrif á hvernig Hagkaup talar við viðskiptavini sína, viljum við heyra frá þér.
Íslenska
Enska









