Félagsvísindasvið Háskóla Íslands
Félagsvísindasvið Háskóla Íslands
Félagsvísindasvið Háskóla Íslands

Rekstrarstjóri Félagsvísindasviðs

Laust er til umsóknar fullt starf rekstrarstjóra við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands. Starfið heyrir undir forseta Félagsvísindasviðs. Rekstrarstjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri og stjórnun á miðlægri skrifstofu sviðsins og stoðþjónustu í nánu samráði við forseta sviðs. Rekstrarstjóri hefur umsjón með og yfirsýn yfir fjármál fræðasviðs, vinnur að bættri nýtingu á fjármunum, hagræðingu og skipulagningu á rekstri. Sem stjórnandi á skrifstofunni ber rekstrarstjóri jafnframt ábyrgð á mannauðsmálum, markaðs- og kynningarmálum, upplýsingatæknimálum og almennri þjónustu við nemendur og starfsfólk.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Daglegur rekstur og stjórnun skrifstofu sviðsins
  • Umsjón með og yfirsýn yfir fjármál fræðasviðsins
  • Stjórnun starfsfólks stoðþjónustu og stjórnsýslu
  • Yfirumsjón með fjárhagsáætlunum sviðs og þeirra stofnana og deilda sem því tengjast
  • Ábyrgð á skjalastjórnun og rekstri tækjabúnaðar sviðsins
  • Miðlun upplýsinga bæði innan fræðasviðs og til miðlægrar stjórnsýslu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, meistarapróf er æskilegt
  • Reynsla af rekstri og fjárhagsáætlanagerð
  • Reynsla af opinberum fjármálum og/eða fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins Orra er æskileg
  • Reynsla af stjórnun, þ.á.m. stjórnun fjármála
  • Reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
  • Leiðtogahæfni
  • Góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
  • Skipulagshæfni og samskiptafærni
Auglýsing birt13. febrúar 2026
Umsóknarfrestur23. febrúar 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Sæmundargata 10, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar