
Rekstrarstjóri á Akureyri
Svens óskar eftir að ráða metnaðarfullan og drífandi rekstrarstjóra til starfa í nýja verslun fyrirtækisins á Akureyri. Viðkomandi þarf að vera lausnamiðaður og með ríka þjónustulund. Um fullt starf er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Daglegur rekstur verslunar
- Tryggja ásýnd verslunar og góða upplifun viðskiptavina
- Ábyrgð á lager- og birgðahaldi verslunar
- Umsjón með vaktaskipulagi
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reynsla af verslunarstjórnun eða sambærilegu starfi
- Menntun sem nýtist í starfi
- Framúrskarandi þjónustulund og jákvætt viðmót
- Framúrskarandi samskipta- og skipulagshæfni
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Um Svens:
Svens er sérvöruverslun sem sérhæfir sig í sölu á nikótínpúðum á Íslandi bæði í verslunum og netverslun og býður mikið úrval tegunda. Markmið Svens er að bjóða gæðavörur á hagstæðu verði. Fyrirtækið hefur einnig vakið athygli fyrir sterka ímynd og markaðssetningu.
Umsóknarfrestur er til og með 23. mars 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni viðkomandi sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veitir Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) í síma 511-1225.
Enska
Íslenska









