
N1
N1 sér fólki og fyrirtækjum fyrir eldsneyti, raforku, rekstrarvörum, veitingum og afþreyingu á þjónustustöðvum félagsins um allt land. Okkar hlutverk er að halda samfélaginu á hreyfingu með persónulegri þjónustu og markvissu vöruúrvali sem uppfyllir kröfur viðskiptavina hvert sem ferð þeirra er heitið.
N1 sparar viðskiptavinum bæði tíma og fyrirhöfn með þéttu neti þjónustustöðva og umbunar þeim með margvíslegum ávinningi af viðskiptunum, m.a. með N1 kortinu sem safnar punktum og nýtast á N1 stöðvum um land allt.
N1 starfar út frá þremur grunngildum sem eru: virðing, einfaldleiki og kraftur. Við sýnum hvert öðru virðingu, veitum þjónustu sem við getum verið stolt af og berum virðingu fyrir umhverfinu. Við leggjum okkur fram við að einfalda líf viðskiptavina okkar og liðsinna með góðu aðgengi að vörum okkar og þjónustu. Við hleypum krafti í samfélagið með öflugri dreifingu og afgreiðslu eldsneytis en einnig með stuðningi við hreyfingu, heilsubót og góð málefni sem auðga mannlífið.
Vel staðsettar þjónustustöðvar og verslanir um land allt, fyrsta flokks dekkja- og smurþjónusta og öflug fyrirtækjaþjónusta gera N1 að sterkri heild sem er mikilvægur hluti af íslensku samfélagi.

N1 verslun Reyðarfjörður
N1 verslun á Reyðarfirði leitar að kraftmiklum og þjónustulunduðum starfsmanni til framtíðarstarfa. Vinnutími er frá kl. 08:00-17:00 virka daga.
Helstu verkefni
Almenn afgreiðsla í verslun
Móttaka og frágangur á vörum og útkeyrsla til viðskiptamanna
Dælingar um borð í skip úr tunnum
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
Samskiptafærni og þjónustulund
Reglusemi og stundvísi áskilin
Meirapróf kostur
Fríðindi í starfi
Afsláttarkjör hjá N1, Krónunni, ELKO og Lyfju
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Frímann Þorsteinsson verslunarstjóri , [email protected]
Auglýsing birt26. janúar 2026
Umsóknarfrestur8. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Búðargata 5, 730 Reyðarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Olís Varmahlíð óskar eftir starfskrafi í afgreiðslu
Olís ehf.

Skagafjörður/Sauðárkrókur: Meiraprófsbílstjóri óskast á ruslabíl / C driver on garbage truck
Íslenska gámafélagið ehf.

Akureyri og Fjallabyggð - Starfsmenn óskast í sorphirðu, gámaplan og allskonar/employee wanted
Íslenska gámafélagið ehf.

Móttaka, verslun og rekstur – framtíðarhlutverk
Steinabón ehf.

Leitum að öflugum liðsfélaga í verslun okkar á Akureyri
Stilling

Sumarstarf á Bókasafni Kópavogs
Sumarstörf - Kópavogsbær

Fjölbreytt sumarstörf í Vestmannaeyjum
Eimskip

Þjónusturáðgjafi í móttöku bílaverkstæðis
Bílaverkstæðið Fram ehf

Starfsmaður í talningateymi
Byko

Starfsmaður í Marc O'Polo
Marc O'Polo Kringlunni

Sölumaður í verslun - Sumarstarf á Akureyri
Sérefni ehf.

Starfsmaður í verslun
Bræður & Co ehf.