

Menntasvið Reykjanesbæjar - Kennsluráðgjafi
Reykjanesbær leitar að metnaðarfullum kennsluráðgjafa til að bætast í öflugan hóp sérfræðinga í skólaþjónustu á skrifstofu menntasviðs. Skólaþjónustan starfar í þverfaglegu og sveigjanlegu starfsumhverfi þar sem samvinna, faglegt starf og farsæld í þágu barna og fjölskyldna þeirra eru í forgrunni.
Starfsfólk Reykjanesbæjar vinnur samkvæmt grunngildum bæjarins, virðingu, eldmóði og framsækni, með það að markmiði að veita íbúum bæjarins framúrskarandi þjónustu á hverjum tíma. Menntastefna sveitarfélagsins, Með opnum hug og gleði í hjarta, endurspeglar skýra sýn þar sem börn eru í forgangi, fjölbreytileiki er styrkur og faglegt menntasamfélag er grundvöllur árangurs.
Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og mikilvægt er að viðkomandi endurspegli þau gildi í sínum störfum.
- Kennsluráðgjöf við leik- og grunnskóla ásamt þátttöku í þverfaglegu ráðgjafateymi skólaþjónustu, þar á meðal þátttaka í nemendaverndarráði.
- Ráðgjöf og stuðningur við foreldra og starfsfólk leik- og grunnskóla vegna einstaklinga og/eða hópa með fjölbreyttar þarfir.
- Handleiðsla og stuðningur til starfsfólks leik- og grunnskóla vegna fjölbreyttra og árangursríkra kennsluhátta með áherslu á snemmbæran stuðning.
- Stuðningur við endurmenntun, nýbreytni- og þróunarstarf leik- og grunnskóla, m.a. ráðgjöf við stjórnendur og starfsfólk til að efla þá í starfi og stuðla að samstarfi.
- Faglegt samstarf við aðra þjónustuveitendur innan og utan sveitarfélags.
- Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
- Viðbótarmenntun á sviði kennslu- og menntunarfræða og/eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af kennslufræðilegri ráðgjöf og/eða kennslufræðilegri forystu.
- Þekking og reynsla á fjölbreyttum náms- og kennsluaðferðum.
- Reynsla af starfi í skólaþjónustu sveitarfélaga og/eða skipulagi stoðþjónustu skóla er kostur.
- Reynsla af skipulagningu, framkvæmd og eftirfylgni verkefna.
- Færni í að vinna í teymum og að fjölbreyttum verkefnum.
- Skipulagshæfni, sjálfstæði og frumkvæði í starfi.
- Jákvætt viðhorf, lausnamiðuð hugsun og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Góð íslenskukunnátta í rituðu og mæltu máli.
- Hreint sakavottorð.
- Bókasafnskort
- Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
- Gjaldfrjáls aðgangur í sund
- Gjaldfrjáls aðgangur í strætó
Íslenska










