

Flækjumeistari óskast
Lindaskóli er skemmtilegur og lifandi vinnustaður þar sem lögð er áhersla á metnað í námi, vellíðan nemenda og gott samstarf starfsfólks. Við vinnum í teymum og leggjum áherslu á jákvætt starfsumhverfi, samvinnu og faglega þróun. Skólinn státar einnig af öflugri skemmtinefnd sem stuðlar að góðum starfsanda.
Lindaskóli er heildstæður grunnskóli í Kópavogi. Í skólanum um 470 nemendur í 1. -10. bekk og 90 starfsmenn. Þar ríkir góður starfsandi og vinnuaðstæður eru góðar. Lindaskóli leggur rækt við listir og menningu í skólastarfinu. Hann leggur jafnframt áherslu á umhverfismennt og er Réttindaskóli UNICEF. Virk heilsuefling er eitt einkenna skólans og hefur til margra ára verið í forystusveit skóla sem hafa tekið þátt í Skólahreysti. Mikil og góð samvinna er milli skólans og heimila í nærumhverfinu. Mikil áhersla er lögð á upplýsingatækni og fjölbreytta kennsluhætti.
Gildi Lindaskóla eru Vinátta, Virðing, Viska.
Lindaskóli óskar eftir að ráða metnaðarfullan og jákvæðan textílkennara til starfa frá og með næsta skólaári.
Ert þú góð/ur í að leysa flækjur og fær þegar snurða hleypur á þráðinn?
Við leitum að skapandi og lausnamiðuðum textílkennara.
Í starfinu felst að leiðbeina nemendum í textílmennt, efla sköpunargleði og styðja þau í að finna eigin leiðir til að leysa verkefni.
Við leggjum áherslu á jákvætt og hvetjandi námsumhverfi þar sem forvitni, þolinmæði og frumkvæði fá að njóta sín.
Við leitum að einstaklingi sem:
- er lausnamiðaður og nýtur þess að „leysa úr flækjum“
- hefur áhuga á skapandi kennsluháttum
- býr yfir þekkingu á textílsögu og íslensku handverki
- hefur áhuga á sjálfbærni og endurnýtingu í textíl
- á auðvelt með samskipti og samstarf
Við leitum að kennurum sem hafa brennandi áhuga á starfi með börnum, vilja taka þátt í öflugu skólastarfi og leggja sitt af mörkum til að efla bæði nám og líðan nemenda.
- Annast textílkennslu í skólanum
- Samstarf list og verkefnakennara
- Skipulagning og framkvæmd náms í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla.
- Stuðla að jákvæðu og hvetjandi skólaumhverfi fyrir alla nemendur.
- Þátttaka í þróunarstarfi og starfsmannafundum.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við starfsfólk skólans
- Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu skilyrði
- Reynsla af kennslu æskileg
- Góð þekking á upplýsingatækni og notkun rafrænna miðla í kennslu og starfi er kostur
- Áhugi á teymiskennslu og samstarfi
- Frumkvæði og metnaður í starfi
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
- Stundvísi og samviskusemi
Íslenska










