

Kennsluráðgjafi á grunnskólastigi
Félags- og Skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu óskar eftir að ráða kennsluráðgjafa í 100% starf á grunnskólastigi. Ráðið er tímabundið til eins árs með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Starfsfólk félags- og skólaþjónustu starfar í þverfaglegu og sveigjanlegu starfsumhverfi þar sem lögð er áhersla á samvinnu, snemmtæka íhlutun og farsæld í þágu barna og fjölskyldna þeirra. Í sveitarfélögunum eru fimm grunnskólar. Íbúar eru rétt rúmlega sex þúsund. Þau fimm sveitarfélög sem mynda byggðasamlag um félags- og skólaþjónustu eru: Ásahreppur, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra, Mýrdalshreppur og Skaftárhreppur.
• Fræðsla og ráðgjöf til foreldra og starfsfólks skóla vegna einstaklinga og/eða hópa með fjölþættar stuðningsþarfir.
• Stuðningur og leiðsögn um fjölbreytta og árangursríka kennsluhætti með áherslu á snemmbæran stuðning.
• Stuðningur við nýbreytni- og þróunarstarf skóla, m.a. með ráðgjöf við stjórnendur og starfsfólk skóla.
• Vinna að samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
• Vinna í þverfaglegu samstarfi félags- og skólaþjónustu.
• Leyfisbréf, staðfesting á réttindum til kennslu.
• Kennslureynsla sem nýtist í starfi æskileg
• Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er æskileg.
• Þekking á fjölbreyttum náms- og kennsluaðferðum.
• Reynsla af kennslufræðilegri ráðgjöf og/eða kennslufræðilegri forystu er kostur.
• Skipulagshæfni, sjálfstæði og frumkvæði.
• Jákvætt viðhorf, lausnamiðuð hugsun og leikni í mannlegum samskiptum.
• Hreint sakavottorð.
Íslenska










