

Matráður - Heilsuleikskólinn Hamravellir
Heilsuleikskólinn Hamravellir óskar eftir að ráða metnaðarfullan matráð í fullt starf.
Í Heilsuleikskólanum Hamravöllum er hópur faglegra og skemmtilegra starfsmanna sem óskar eftir liðsauka.
Hamravellir er staðsettur innarlega á Völlunum í Hafnarfirði þar sem stutt er í ósnortna náttúru. Hamravellir er heilsuleikskóli þar sem áhersla er lögð á hollt mataræði, útiveru, hreyfingu og sköpun. Einkunnarorð leikskólans eru hreyfing, sköpun og vellíðan. Gildi leikskólans eru leikur og umhyggja.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Annast matargerð í mötuneyti leikskólans
- Sér um innkaup fyrir mötuneyti leikskólans
- Eldar samkvæmt sameiginlegum matseðlum leikskóla Hafnarfjarðar
- Annast dagleg þrif eldhúss
- Hefur umsjón með tækjum og búnaði í eldhúsi
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Námskeið og/eða styttri námsleiðir á sviði matreiðslu er skilyrði
- Reynsla af starfi í eldhúsi/mötuneyti skilyrði
- Gerð er krafa um marktæka og góða reynslu á sviði matreiðslu
- Góð þekking á næringarfræði og rekstri mötuneyta
- Áhugi á heilbrigðu mataræði og vilji til að þróa matseðil í samvinnu við aðra
- Sjálfstæði, þjónustulund og góð samskiptafærni
- Góð almenn tölvuþekking
- Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)
Fríðindi í starfi:
- Heilsuræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur
- Bókasafnskort
- Sundkort
- 75% afsláttur af leikskólagjöldum
- Forgangur í leikskóla
- Stuðningur til menntunar
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hildur Arnar Bjargardóttir, leikskólastjóri, [email protected] eða í síma 424-4640 eða Stephen James Midgley, aðstoðarleikskólastjóri, [email protected].
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Verkalýðsfélagið Hlíf
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Íslenska
























