Kópasteinn
Kópasteinn
Kópasteinn

Starfsmaður í eldhús

Leikskólinn Kópasteinn óskar eftir að ráða aðstoðarmatráð í tímabundið starf vegna afleysinga, um er að ræða 100% starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi. Starfið er laust til 01.01 2027

Kópasteinn tók til starfa 1964, í skólanum eru 98 börn á fimm deildum og er húsnæði skólans í tveimur byggingum. Starfað er eftir Aðalnámskrá leikskóla með áherslu á lífsleikni, tónlist og málrækt. Gaman saman eru einkunnarorð skólans og endurspeglar það starfið.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sér um þrif á eldhúsi samkvæmt Gámes þrifaáætlun - gólfþrif undanskilinn.
  • Sér um þvotta og frágang. Heldur þvottahúsi og vélum snyrtilegum.
  • Sér um uppvask.
  • Heldur kaffistofu snyrtilegri.
  • Hefur góða samvinnu við allar deildir leikskólans jafnt börn sem starfsfólk.
  • Aðstoðar í þeim verkefnum sem til falla í eldhúsi s.s. að færa upp matinn, sjá um meðlæti, setja á vagna og fleira.
  • Tekur fullan þátt í matseld þegar mikið er að gera.
  • Sinnir öðrum þeim störfum sem yfirmaður felur honum.
  • Í forföllum matráðs tekur viðkomandi upp starfslýsingu matráðs.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Þekking og reynsla af eldhússtörfum og matreiðslu. 
  • Ábyrgur og jákvæður einstaklingur sem á auðvelt með mannleg samskipti.
  • Sjálfstæð vinnubrögð.
  • Snyrtimennska.
  • Áhugasemi og ábyrgðarkennd.
  • Góð íslenskukunnátta. 
Fríðindi í starfi

Í Kópavogi er er hluti af vinnustyttingu notað í vetrar-, jóla- og páskaleyfi. 

Frítt í sund.

Auglýsing birt25. ágúst 2026
Umsóknarfrestur3. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hábraut 1, 200 Kópavogur
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar