
Hyatt Centric Reykjavík
Hyatt Centric Reykjavík er nýtt og glæsilegt lífsstílshótel sem opnar á Laugavegi í desember 2026. Hótelið verður staðsett í hjarta borgarinnar og mun bjóða upp á 177 herbergi, veitingastað og rooftop aðstöðu með einstöku útsýni yfir borgina. Hótelið er hannað með hlýlegt umhverfi, vönduðum smáatriðum og einstakri upplifun gesta að leiðarljósi.
Við leggjum áherslu á framúrskarandi þjónustu og sterka liðsheild þar sem starfsfólk fær tækifæri til að taka þátt í að byggja upp spennandi vinnustað frá grunni.

Markaðs- og upplifunarstjóri
Hyatt Centric Reykjavík leitar að skapandi og metnaðarfullum einstaklingi í starf markaðs- og upplifunarstjóra. Hér gefst einstakt tækifæri til að taka þátt í opnun hótelsins og móta ímynd og markaðsstarf þess frá grunni. Hótelið verður staðsett á Laugavegi og markar komu alþjóðlegu hótelkeðjunnar Hyatt til Íslands.
Starfið felur í sér að leiða markaðsmál og ásýnd Hyatt Centric Reykjavík og skapa eftirminnilega upplifun fyrir gesti. Viðkomandi verður hluti af öflugu teymi Hyatt og vinnur náið með samstarfsfólki og ytri samstarfsaðilum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þróa og innleiða heildstæða markaðsstefnu fyrir hótelið
- Stýra samfélagsmiðlum, efnisgerð og auglýsingaherferðum
- Hafa umsjón með upplifun gesta og tryggja samræmda ásýnd hótelsins, allt frá bókun til brottfarar.
- Greina og fylgjast ánægju gesta og vinna að stöðugum umbótum í samstarfi við önnur teymi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Viðeigandi menntun sem nýtist í starfi
- Haldgóð reynsla af markaðsmálum, vörumerkjauppbyggingu eða sambærilegum verkefnum
- Reynsla úr hótel- eða ferðaþjónustu er kostur
- Framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að vinna í teymi
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
- Þekking á stafrænum markaðsverkfærum
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, fleiri tungumál gagnleg
Fríðindi í starfi
Auglýsing birt4. júní 2026
Umsóknarfrestur18. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Laugavegur 176, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
HugmyndaauðgiÍmyndarsköpunMannleg samskiptiMarkaðsmálSkipulagTeymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar




