Jónsbók
Jónsbók
Jónsbók

Lögfræðingur - Viðskiptaþróun & Sala – Jónsbók

Taktu þátt í að móta framtíð lögfræðinnar

Jónsbók er fyrirtæki sem býr til gervigreindarlausnir fyrir lögfræðinga á Íslandi, norðurlöndunum, Ungverjalandi og brátt fleiri Evrópulöndum.

Vegna aukinna umsvifa leitum við að öflugum liðsfélaga í viðskiptaþróun og sölu. Þetta er lykilhlutverk þar sem þú vinnur beint með stofnendum og teymi að því að stækka markaði, og tryggja framúrskarandi upplifun viðskiptavina.

Ef þú vilt vinna í umhverfi þar sem þú getur haft raunveruleg áhrif, mótað vöruna og tekið þátt í einum hraðast vaxandi hugbúnaðarsprota á Íslandi, þá er þetta tækifærið fyrir þig.

Sem hluti af Jónsbók munt þú:

  • Leiða sölu og viðskiptaþróun: finna tækifæri, byggja upp tengsl og samningagerð.

  • Kynna vöruna á fundum og útskýra virði hennar fyrir lögfræðingum og fyrirtækjum

  • Byggja upp og rækta viðskiptasambönd við lykilaðila (lögmannsstofur, fyrirtæki, opinbera aðila o.fl.)

  • Taka þátt í að þróa go-to-market: verðlagningu, skilaboð, söluefni, og ferla

  • Vinna þvert á teymi og koma endurgjöf viðskiptavina inn í vöruþróun

  • Styðja við innleiðingu og fyrstu skref viðskiptavina með vörunni (customer success / onboarding)

  • Taka þátt í uppbyggingu á nýjum mörkuðum, með möguleikum á ferðalögum og fundum erlendis eftir þörfum

Þú gætir passað í hópinn ef þú:

  • Ert lögmaður eða með sterka þekkingu á lögfræðilegum vinnubrögðum (mikill kostur)

  • Hefur reynslu af sölu, viðskiptaþróun eða ráðgjöf (B2B er kostur)
  • Hefur áhuga á tæknivörum og nýtur þess að læra nýja hluti (AI/LLM umhverfi er plús)

  • Þrífst í óvissu og hefur gaman af því að leysa verkefni þar sem lausnin er ekki augljós

  • Tekur ábyrgð, sýnir frumkvæði og ert mannblendin.

Kostir sem gætu gert þig að sterkum umsækjanda:

  • Reynsla af lögmanns- eða lögfræðistörfum
  • Þekking eða reynsla í markaðssetningu (skilaboð, efni, herferðir, vefur, samfélagsmiðlar)

  • Reynsla af því að vinna með CRM/sölupípulínu, samningsferlum eða innleiðingu viðskiptavina

  • Að hafa verið virkur í félagsstarfi, tengslaneti eða viðburðahaldi (og kunna að virkja samfélög)

  • Góð framkoma í kynningum og hæfni til að einfalda flókin mál

Af hverju Jónsbók?

  • Vertu hluti af ferðalagi þar sem þú getur haft raunveruleg áhrif

  • Starfaðu í fremstu röð við að móta hvernig gervigreind er notuð í lögfræði

  • Starfaðu með nýjustu tækni og teymi sem lærir og framkvæmir hratt í ört vaxandi hugbúnaðarfyrirtæki með viðskiptavini á Íslandi og erlendis

  • Möguleiki á ferðalögum og þátttöku í uppbyggingu á nýjum mörkuðum

  • Samkeppnishæf kjör og möguleiki á árangurstengingu

Auglýsing birt12. janúar 2026
Umsóknarfrestur8. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Lágmúli 5, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Embættispróf í lögfræðiPathCreated with Sketch.GervigreindPathCreated with Sketch.ÍmyndarsköpunPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MarkaðsmálPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamningagerðPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.Viðskiptasambönd
Starfsgreinar
Starfsmerkingar