Sérfræðingur í viðskiptaþróunar- og greiningardeild

Ertu talnaglögg/ur með brennandi áhuga á greiningum?

Vistor leitar að metnaðarfullum sérfræðingi í viðskiptaþróun og greiningum sem vill taka virkan þátt í að móta framtíð lyfjamarkaðarins á Íslandi. Starfið einkennist af frumkvæði, sjálfstæði og tækifærum til að hafa áhrif, bæði innan fyrirtækisins og fyrir samfélagið í heild.

Viðkomandi starfar í nánu samstarfi við markaðsstjóra og sérfræðinga í teymi viðskiptaþróunar og greiningar, þar sem greiningar, gögn og innsýn eru nýtt til að taka upplýstar og framsæknar ákvarðanir.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Greining á markaði, tækifærum og þróun lyfja
  • Áætlanagerð og eftirfylgni með markmiðum og áætlunum
  • Kostnaðar- og ábatagreiningar á lyfjameðferðum
  • Verðútreikningar og vinna við umsóknir um greiðsluþátttöku
  • Samskipti við opinbera aðila og birgja
  • Öflun, úrvinnsla og skýr framsetning gagna til ákvarðanatöku
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. menntun í viðskipta- eða verkfræði, heilsuhagfræði og/eða heilbrigðisvísindum
  • Framúrskarandi hæfni í greiningum, gagnavinnslu og skýrslugerð(Excel og Power BI eru skilyrði)
  • Áhugi og drifkraftur til að nýta gervigreind, sjálfvirknivæðingu og stafræna gagnavinnslu til að skapa ný tækifæri og styrkja ákvarðanatöku.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð, sterk samskiptafærni og hæfni til að vinna þvert á teymi og fagaðila
  • Þekking á lyfjamarkaði og íslensku heilbrigðiskerfi er kostur
Fríðindi í starfi
  • Hollur og góður morgun- og hádegisverður
  • Aðgangur að sund- og líkamsræktarstöð
  • Niðurgreiðsla á sálfræðiþjónustu
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur
Auglýsing birt14. janúar 2026
Umsóknarfrestur25. janúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Hörgatún 2, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.Power BI
Starfsgreinar
Starfsmerkingar