
Icelandia
Icelandia er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 einstaklingar sem leggja sig fram við að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustuupplifun.
Undir vörumerki Icelandia starfa:
Almenningsvagnar Kynnisferða
Dive.is
Flybus
Garðaklettur
Hópbifreiðar Kynnisferða
Icelandic Mountain Guides
Reykjavik Excursions
Fyrirtækið sinnir ferðamönnum með ólíkri þjónustu sem spannar allt frá rútuferðum til sérsniðinna ævintýraferða.
Almenningsvagnar Kynnisferða eiga 58 strætisvagna og sjá um viðhald og rekstur þeirra. Félagið sinnir akstri á 11 leiðum fyrir Strætó bs á höfuðborgarsvæðinu.
Dive.is sérhæfir sig í köfunar- og snorklferðum í Silfru auk þess að vera fimm stjörnu PADI köfunarskóli.
Flybus býður upp á akstur á milli Reykjavíkur og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.
Garðaklettur á og sér um viðhald og rekstur á dráttarbílum ásamt því að sinna vörubílaakstri.
Hópbifreiðar Kynnisferða heldur utan um rekstur hópbifreiða af öllum stærðum.
Icelandic Mountain Guides hafa verið í fararbroddi íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja á sviði afþreyingar, göngu- og fjallaferðum og bjóða meðal annars upp á fjórhjólaferðir, jöklaferðir og styttri og lengri gönguferðir.
Reykjavik Excursions er eitt elsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins og býður upp á dagsferðir í Bláa Lónið, Gullna hringinn, Jökulsárlón, norðurljósa ferðir og margt fleira.
Icelandia leitar að áhugasömu starfsfólki sem nýtir þekkingu og reynslu í daglegum störfum í jákvæðu starfsumhverfi.
Fyrirtækið er ISO 14001 vottað og er það markmið okkar að nálgast náttúruna með sjálfbæra þróun að leiðarljósi.

Leiðsögumaður - ATV / Buggy
Við leitum að ástríðufullum leiðsögumanni til að leiða gesti í ATV- og buggyferðum á Sólheimasandi og Mýrdalsjökli. Þetta er tækifæri til að vera hluti af framsækinni ferðaþjónustu á einstakri náttúruperlu, þar sem engar tvær ferðir eru eins. Um er að ræða 100% starf í 7-7 vaktavinnu frá júní til október.
English job description is available by clicking "Sækja um".
Ferðaskrifstofa Icelandia er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 einstaklingar sem leggja sig fram við að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustuupplifun — allt frá rútuferðum til sérsniðinna ævintýraferða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiðsögn á ATV og buggy á svæðinu.
- Undirbúningur ferða og aðstoð með öryggisbúnað.
- Vinna eftir umhverfis-, öryggis- og gæðastöðlum fyrirtækisins.
- Önnur tilfallandi verkefni sem falla að eðli starfsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af leiðsögn er æskileg.
- Gilt B-ökuréttindi eru skilyrði. D-réttindi eru æskileg.
- Framúrskarandi enskukunnátta í töluðu máli er skilyrði. Frekari tungumálakunnátta er kostur.
- Reynsla af ATV / Buggy leiðsögn er mikill kostur.
- Lipurð í mannlegum samskiptum, jákvæðni og drifkraftur — bæði í þjónustu við gesti og í teymisvinnu.
- Jákvætt viðhorf til sameiginlegrar umgengni og þátttöku í daglegum verkum á starfsstað.
- Sveigjanleiki og frumkvæði í vinnubrögðum.
- Snyrtileg framkoma og stundvísi.
Auglýsing birt26. maí 2026
Umsóknarfrestur10. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaValkvætt
Staðsetning
Ytri-Sólheimar 163042, 871 Vík
Starfstegund
Hæfni
Almenn ökuréttindiDrifkrafturJákvæðniLeiðsögumaðurMannleg samskiptiÖryggisvitundÞjónustulund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (5)
Sambærileg störf (8)

Jöklaleiðsögumaður - sumarstarf
Icelandia

Kayak leiðsögumaður - sumarstarf
Icelandia

Front Desk Agent – Full-Time, Long-Term Position
Hótel Vík í Myrdal

Bókunarfulltrúi - Sölu & Markaðssvið
Íslandshótel

Guia em Português - Islândia / Portuguese Speaking Guide – Iceland
ICS ehf.

Sumarstarf 2026 - Ökuleiðsögumaður/Prívat Lúxus ferðir
Deluxe Iceland

Hópferðabílstjóri
Icelandia

Gestamóttaka - hotel receptionist
Hótel Eyja