Icelandia
Icelandia
Icelandia

Þjónustufulltrúi - sumarstarf

Við leitum að skipulögðum, áreiðanlegum og sjálfstæðum einstaklingi til að starfa á starfsstöð okkar á Sólheimasandi. Hlutverkið felur í sér að taka á móti gestum, kynna þeim fyrir upplifunum sem eru í boði á svæðinu á vegum fyrirtækisins og selja miða — allt úr bíl á einum af fegurstu stöðum landsins.

Um er að ræða 100% starf í 7-7 vaktavinnu frá júní til október. Húsnæði er í boði í vinnuvikum.

English job description is available by clicking "Sækja um".

Ferðaskrifstofa Icelandia er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 einstaklingar sem leggja sig fram við að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustuupplifun. Fyrirtækið sinnir ferðamönnum með ólíkri þjónustu sem spannar allt frá rútuferðum til sérsniðinna ævintýraferða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þjónusta og móttaka viðskiptavina.
  • Þátttaka í vöruþróun rafhjólaleigu.
  • Vinna eftir umhverfis-, öryggis- og gæðastöðlum fyrirtækisins.
  • Önnur tilfallandi verkefni sem falla að eðli starfsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi og/eða reynsla af sambærilegum störfum er æskileg.
  • Framúrskarandi enskukunnátta í töluðu og rituðu máli er skilyrði. Frekari tungumálakunnátta er kostur.
  • Lipurð í mannlegum samskiptum og jákvæðni, bæði í þjónustu við gesti og í teymisvinnu.
  • Sveigjanleiki, drifkraftur og frumkvæði í vinnubrögðum.
  • Reynsla af hjólreiðum á fjallahjóli er kostur en ekki skilyrði.
  • Gilt B-réttindi eru skilyrði.
  • Góð tölvufærni.
  • Snyrtimennska og stundvísi.
Auglýsing birt26. maí 2026
Umsóknarfrestur10. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Ytri-Sólheimar 163042, 871 Vík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar