Icelandia
Icelandia
Icelandia

Jöklaleiðsögumaður - sumarstarf

Við leitum að jákvæðum og áreiðanlegum jöklaleiðsögumönnum sem hafa lokið AIMG Jökla 1 eða Jökla 2 námskeiði til starfa á Adventure Ground við Sólheima- og Mýrdalsjökul. Starfið hentar miðlungs til mikið reyndum leiðsögumönnum sem vilja vinna í fallegri og krefjandi náttúru. Unnið er skv. 7-7 vaktaskipulagi og húsnæði er í boði í vinnuvikum. Um tímabundna stöðu er að ræða frá júní til miðs október, en byrjunardagsetning er sveigjanleg.

English job description is available by clicking "Sækja um".

Ferðaskrifstofa Icelandia er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 einstaklingar sem leggja sig fram við að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustuupplifun. Fyrirtækið sinnir ferðamönnum með ólíkri þjónustu sem nær yfir allt frá rútuferðum til sérsniðinna ævintýraferða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiðsögn í jöklagöngum á Sólheimajökli og tengdum ferðum á svæðinu.
  • Vinna eftir umhverfis-, öryggis- og gæðastöðlum fyrirtæksins.
  • Viðhald á búnaði í notkun viðskiptavina.
  • Önnur tilfallandi verkefni sem falla að eðli starfsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • AIMG Hard Ice 1 or 2 er nauðsynlegt, Alpine Trekking 1 er kostur.
  • Gild skyndihjálparréttindi í óbyggðum (Wilderness First Responder ákjósanlegt)
  • Gild ökuréttindi B eru nauðsynleg; D réttindi er kostur.
  • Góð færni í ensku í töluðu máli er skilyrði.
  • Framúrskarandi þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Jákvætt viðhorf til sameiginlegrar umgengni og þátttöku í daglegum verkum á starfsstöð.
  • Jákvæðni, snyrtimennska og stundvísi.
  • Sjálfstæð, drífandi og skipulögð vinnubrögð.
Auglýsing birt26. maí 2026
Umsóknarfrestur10. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Ytri-Sólheimar 1 163037, 871 Vík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Jökla 1PathCreated with Sketch.Jökla 2PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Skyndihálparréttindi í óbyggðumPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar