
Kerfisstjóri
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða reyndan og skipulagðan einstakling í starf kerfisstjóra í þróunar- og tölvudeild. Hafnarfjarðarbær hefur verið leiðandi sveitarfélag við innleiðingu á stafrænum og tæknilegum lausnum og vill vera þar í fararbroddi. Þróunar- og tölvudeild fer með stjórnun og stefnumótun í tölvumálum bæjarins og tengdra stofnana, ásamt því að sjá um samhæfingu og eftirlit. Deildin sér um rekstur allra tölvukerfa og tryggir að meðhöndlun kerfa og gagna sé í samræmi við þarfir bæjarins og öryggiskröfur.
Kerfisstjóri tekur virkan þátt í rekstri og þróun tækniumhverfis bæjarins, veitir samstarfsfólki tæknilega leiðsögn og vinnur náið með ytri sérfræðingum. Starfið heyrir undir deildarstjóra þróunar- og tölvudeildar.
Við leitum að einstaklingi sem hefur mikla reynslu af Microsoft -umhverfi, skýjaþjónustum og nútímalegum rekstri upplýsingatækni, nýtur þess að leysa flókin tæknimál og getur forgangsraðað fjölbreyttum verkefnum þar sem öryggi, sjálfvirkni og góð notendaþjónusta fara saman.
- Kerfisstjórnun í Microsoft 365, Azure, Entra ID, Active Directory og Intune
- Aðgangsstýring, tækjastýring og eftirfylgni með tæknilegum öryggisráðstöfunum
- Uppsetning og rekstur kerfa á netþjónum í Azure og hjá hýsingaraðila, í samstarfi við ytri þjónustuaðila
- Þátttaka í netrekstri, bilanagreiningu og breytingum með netráðgjafa bæjarins
- Vinnur að fyrirbyggjandi öryggisráðstöfunum, öruggum kerfisstillingum og úrbótum vegna veikleika
- Úrlausn flókinna þjónustubeiðna, tæknilegur stuðningur við samstarfsfólk og notendaþjónusta eftir þörfum
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
- Menntun í kerfisstjórnun, tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði, tölvuverkfræði eða sambærilegri grein sem nýtist í starfi
- Viðeigandi fagvottanir á sviði Microsoft -skýjaþjónustu, kerfisstjórnunar, aðgangsstýringar eða netrekstrar
- Að lágmarki fimm ára reynsla af kerfisstjórnun í Microsoft 365, Entra ID og Active Directory, auk góðrar þekkingar á Azure, Intune, auðkenningu, réttindastýringu og tækjarekstri
- Reynsla af sjálfstæðri úrlausn flókinna mála, tæknilegri leiðsögn og samstarfi við þjónustuaðila
- Geta til að bregðast við breytingum og aðlagast breyttum aðstæðum, auk þess að nýta tækniframfarir til að bæta rekstur og þjónustu
- Reynsla af umbótavinnu, einföldun ferla eða sjálfvirkni í rekstri upplýsingatækni er kostur
- Mikil skipulagshæfni, sjálfstæði og geta til að forgangsraða og fylgja verkefnum eftir
- Þjónustulund, góð samskiptahæfni og vilji til að miðla þekkingu
- Góð íslenskukunnátta og færni í ensku til tæknilegra samskipta og upplýsingaöflunar




