

Kennari vegna forfalla í Salaskóla!
Okkur í Salaskóla vantar kennara í tímabundin forföll. Um er að ræða forföll á haustönn og mögulegt framhald eftir áramót, t.d. í stundakennslu.
Í Salaskóla vinna kennarar saman í teymum við undirbúning og skipulagningu náms og kennslu og mikil áhersla lögð á fjölbreytta kennsluhætti. Rauður þráður í starfi skólans er að nemendur fái að njóta sín í námi og leik og að þeim líði vel í skólanum. Skólinn var stofnaður árið 2001 og eru nemendur um 500 í 1. til 10. bekk. Við skólann starfa tæplega 100 starfsmenn.
Ráðningartími og starfshlutfall
- Um er að ræða sveigjanlegt starfshlutfall eftir tímabilum, gæti verið 70-100% einhverjar vikur og stundakennsla aðrar vikur.
- Starfið gæti hentað 5. árs kennaranema.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu.
- Vilji og hæfni til teymiskennslu og teymisvinnu.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Hæfni í mannlegum samskiptum, þolinmæði og umburðarlyndi gagnvart fjölbreyttum nemendahópi.
- Áreiðanleiki og stundvísi.
- Vera tilbúinn að vinna eftir stefnu skólans.
- Góð hæfni í íslensku, töluðu og rituðu máli.
Nánari upplýsingar
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Öll sem ráða sig til starfa hjá grunnskólum Kópavogs þurfa að heimila upplýsingaöflun úr sakaskrá.
Upplýsingar gefur Kristín Sigurðardóttir skólastjóri, [email protected] eða í síma 441-3200/840-2393.
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frítt í sund í sundlaugar sveitarfélagsins.












