

Starf í leikskólanum Garðaseli
Heilsuleikskólinn Garðasel á Akranesi auglýsir eftir starfsmanni til starfa sem fyrst. Um er að ræða 80% til 100% stöður eftir nánara samkomulagi.
Garðasel er Heilsuleikskóli og leggur áherslu á hreyfingu, heilsu og gæði í samskiptum. Við leitum að duglegu og jákvæðu fólki sem tilbúið er að vinna með skemmtilegum börnum og starfsfólki. Ef ekki fæst kennari til starfa kemur til greina að ráða leiðbeinanda til starfa. Í leikskólanum eru allt að 160 börn á sjö deildum og einkunnarorð skólans eru: Lífið er leikur.
Leikskólinn er í nýju og glæsilegu húsnæði þar sem m.a. starfsaðstaða, hljóðvist og lýsing er til fyrirmyndar.
Vinna að uppeldi og menntun barna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara eða leiðbeinenda í leikskóla. Starfið er unnið í samvinnu við leikskólakennara, deildarstjóra og skólastjórnendur.
- Leyfisbréf kennara- Kennaramenntun
- Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
- Jákvæðni, lipurð og góð færni í samskiptum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
- 18 ára og eldri
- Hreint sakavottorð












