

IT Support Administrator
Viltu taka þátt í verkefnum með það að markmiði að bæta hreyfanleika fólks?
Við leitum að hressum og áreiðanlegum aðila í IT Support Iceland teymi Össurar. IT Support Iceland sinnir notendaþjónustu á vél- og hugbúnaði fyrir starfsfólk Össurar á Ísland.
Ert þú tæknisérfræðingurinn í þinni fjölskyldu? Ert þú alltaf fengin/nn/ð til að laga netið hjá fjarskyldum frænkum? Hringir amma þín bara í þig þegar hún fiktar óvart í fjarstýringunni á sjónvarpinu? Þá gætum við verið að leita að þér.
-
Tæknileg aðstoð við starfsfólk þvert á fyrirtækið
-
Aðstoð við vélbúnaðaruppsetningar, uppfærslur og viðgerðir
-
Greina villur og bilanir
-
Leysa vélbúnaðar- og hugbúnaðarvandamál
-
Ástríða fyrir tækni
-
Grunnþekking á upplýsingatækni
-
Þekking á Microsoft umhverfi
-
Þekking á Lenovo vélbúnaði er kostur
-
Lausnamiðað hugarfar
-
Metnaður og vilji til að læra nýja hluti
-
Þjónustulund og þolinmæði
-
Jákvæðni og skipulagshæfileikar
-
Ensku og íslenskukunnátta
-
Líkamsræktarstyrkur
-
Samgöngustyrkur
-
Líkamsræktaraðstaða, hjólageymsla og golfhermir
-
Mötuneyti með fjölbreyttu úrvali af mat
-
Frí heilsufars-mæling og ráðgjöf
-
Árlegur sjálfboðaliðadagur
- Starfsþróun
-
Öflugt félagslíf
Íslenska
Enska















