

Innviðir framtíðarinnar - Ofar leitar að sérfræðingum í gagnaverum (Blönduós)
Viltu vera hluti af innviðum framtíðarinnar?
Við hjá Ofar leitum að framsæknum og áreiðanlegum einstaklingum til að ganga til liðs við innviðateymi fyrirtækisins, sem sinnir rekstri, eftirliti og þjónustu við gagnaver víðs vegar um landið.
Þetta er spennandi tækifæri fyrir áhugasama aðila sem vilja starfa í mikilvægum og hraðvaxandi geira og þróast faglega með öflugu teymi.
Um er að ræða vaktavinnu í 24/7 rekstri, allt árið um kring, samkvæmt skilgreindu vaktafyrirkomulagi. Starfsmenn fá ítarlega þjálfun í upphafi og áframhaldandi stuðning í starfi.
Starfsstöð verður í gagnaveri sem staðsett er 2km frá Blönduósi
Í Húnabyggð búa rúmlega 1.400 manns, en sveitarfélagið er ungt og í mikilli sókn og uppbyggingu. Á Blönduósi, sem er eini þéttbýliskjarni sveitarfélagsinns, búa tæplega 900 manns. Húnabyggð er mjög barnvænt sveitarfélag með sterkum leikskóla þar sem öll börn fá pláss, engir biðlistar eru og þjónustan er ein sú ódýrasta á landinu.
Grunnskólinn er öflugur, íþróttalífið sterkt, sundlaugin landsþekkt og félagsmiðstöðin frábær. Það er gott að ala upp börn í Húnabyggð. Blönduós er í alfaraleið, um 2,5klst frá Reykjarvíkursvæðinu og 1,5klst frá Akureyrarsvæðinu.
Húnabyggð er mjög landmikil og leiðir til að stunda útivist eru nánast óendanlegar. Sveitarfélagið nær frá Skagatá inn á miðhálendið að Hveravöllum, stutt er í skíðasvæði og óteljandi möguleikar til að ganga, hlaupa, hjóla, vera á gönguskíðum o.s.frv.
Ró og friður, sveitasæla og fallegasta sólsetur landsins eru einkenni svæðisins, hér þarf ekki að bíða í umferð og menningardagskrá með ýmiskonar viðburðum er í gangi allt árið.
-
Daglegt eftirlit með búnaði, innviðum og umhverfi gagnavera
-
Reglubundið eftirlit og umhverfisvöktun
-
Öflun viðeigandi vottana og/eða réttinda til að starfrækja búnað
-
Meðhöndlun, greining og eftirfylgni atvika, tilkynninga og þjónustubeiðna
-
Framkvæmd staðlaðra verkferla og öryggisúttekta
-
Samskipti og samvinna við birgja, þjónustuaðila og samstarfsaðila innanlands og erlendis
-
Almenn tækniaðstoð og prófanir eftir þörfum í rekstri gagnavera
-
Grunnþekking og/eða reynsla af gagnaverum, tæknilegum innviðum, net- eða rafmagnsbúnaði er kostur
-
Frumkvæði, áreiðanleiki og geta til sjálfstæðra vinnubragða
-
Góð samskiptahæfni og fagleg framkoma
-
Bílpróf er nauðsynlegt
-
Menntun í rafvirkjun eða rafeindavirkjun er kostur











