Hilton Reykjavík Nordica
Hilton Reykjavík Nordica
Hilton Reykjavík Nordica

Innkaupafulltrúi

Við leitum að ábyrgum aðila til að sinna starfi innkaupafulltrúa hjá Hilton Reykjavík Nordica. Starf innkaupafulltrúa heyrir undir yfirkokk hótelsins. Starfið felst m.a. í því að sjá um innkaup á hráefni, áhöldum og öðrum nauðsynjum fyrir rekstur hótelsins ásamt skráningum, talningum ofl. Í starfinu getur jafnframt falist að aðstoða í eldhúsi þegar þörf er á. Um vaktavinnustarf er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á á öllum innkaupum hráefnis fyrir veitingadeild, áhöldum og fl. er tengist hótelrekstrinum
  • Ábyrgð á samskiptum við birgja
  • Eftirlit með birgðavörslu
  • Eftirlit og eftirfylgni í að vörur séu í samræmi við pantanir er varðar gæði og magn
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sveinspróf/meistarapróf í matreiðslu
  • Góð tölvu, íslensku- og enskukunnátta
  • Rík þjónustulund og vönduð framkoma
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Jákvæðni og skipulögð vinnubrögð
  • Snyrtimennska, stundvísi og sveigjanleiki

Nánari upplýsingar veitir Bjarni Gunnar Kristinssson, yfirkokkur, [email protected]

Við hvetjum öll áhugasöm til að sækja um óháð kyni, aldri eða uppruna.

Iceland Hotel Collection By Berjaya er fyrirtæki sem starfar í alþjóðlegu umhverfi þar sem lögð er áhersla á samvinnu, sveigjanleika og frumkvæði í starfi. Hjá fyrirtækinu starfar samhentur ­hópur með sameiginleg markmið, þar sem borin er virðing fyrir gestum, samstarfsmönnum og náttúrunni.

Auglýsing birt12. júní 2025
Umsóknarfrestur19. júní 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar