Sensa ehf.
Sensa ehf.
Sensa ehf.

Starfsmaður óskast í innkaupa- og lagerstarf

Sensa leitar að öflugum og skipulögðum einstaklingi til að ganga til liðs við söluteymi Sensa í fjölbreytt innkaupa- og lagerstarf.

Viðkomandi mun sinna verkefnum tengdum birgðahaldi, móttöku, afhendingu vara, samskiptum við birgja og þróun ferla. Mikil áhersla er lögð á frumkvæði, nákvæmni og góða samskiptahæfni.

Starfið verður mótað í samráði við starfsmanninn þar sem styrkleikar og áhugasvið verður nýtt til fulls. Því hvetjum við fólk með fjölbreytta reynslu eða sérþekkingu – hvort sem það er úr lagerstörfum, innkaupum, aðfangakeðju, upplýsingakerfum eða öðru – til að sækja um.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg störf á lager, móttaka og frágangur búnaðar 
  • Umsjón með birgðahaldi og skráning í kerfi 
  • Innkaup á vörum og samskipti við birgja 
  • Skipulagning og eftirfylgni pantana 
  • Þátttaka í umbótaverkefnum og ferlavinnu 
  • Stuðningur við önnur störf innan teymisins 
  • Önnur tilfallandi verkefni  
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af lagerstörfum og/eða innkaupum er skilyrði 
  • Góð skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum 
  • Færni í tölvukerfum og skráningarkerfum fyrir lager og innkaup 
  • Reynsla af D365 er kostur en ekki skilyrði 
  • Lipurð í samskiptum og mikil þjónustulund 
  • Hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymi 
  • Bílpróf er skilyrði
  • Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði
Fríðindi í starfi
  • Samgöngustyrkur fyrir þá sem kjósa annan ferðamáta en einkabílinn
  • Heilsueflingarstyrkur
  • Hjólageymsla, líkamsræktar- og sturtuaðstaða
  • Fyrsta flokks mötuneyti
Auglýsing birt6. júní 2025
Umsóknarfrestur15. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Lyngháls 4, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar