
Rubix og Verkfærasalan
Rubix er leiðandi fyrirtæki í Evrópu sem dreifingaraðili á iðnaðarrekstrarvörum og er þekkt fyrir hágæðavörur og sveigjanlega þjónustu. Framúrskarandi þjónusta okkar ber fyrst og síðast að þakka góðu starfsfólki. Rubix á og rekur Verkfærasöluna en Verkfærasalan flytur inn vélar og verkfæri fyrir allar greinar iðnaðar og einstaklinga frá t.d. Milwaukee, Ryobi, Yato, Hultafors og Telwin. Verkfærasalan er með verslanir í Síðumúla í Reykjavik, á Akureyri og á Dalveginum í Kópavogi.

Öflugur innkaupafullrúi hjá Rubix og Verkfærasölunni óskast
Við leitum að jákvæðum og drífandi einstaklingi í fjölbreytt og skemmtilegt starf hjá framsæknu fyrirtæki þar sem samvinna og lausnamiðuð hugsun er í forgangi.
Innkaupafulltrúi ber ábyrgð á að tryggja skilvirk og hagkvæm innkaup fyrir fyrirtækið. Viðkomandi hefur umsjón með samskiptum við birgja, verðkönnun, samningagerð og að pantanir séu afgreiddar á réttum tíma í samræmi við þarfir fyrirtækisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast innlend og erlend innkaup í samræmi við innkaupastefnu fyrirtækisins
- Finna og meta birgja, afla tilboða og semja um verð og skilmála
- Viðhalda góðum samskiptum við birgja og aðra samstarfsaðila
- Fylgjast með birgðarstöðu og tryggja rétt magn af vörum á réttum tíma
- Svara fyrirspurnum og veita upplýsingar til viðskiptavina
- Sjá um skráningu og breytingar á vörunúmerum
- Fylgja eftir pöntunum og tryggja afhendingu
- Samskipti við tollayfirvöld og farmflytjendur
- Þátttaka í öðrum tilfallandi verkefnum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
- Reynsla af innkaupum, birgðastýringu eða sambærilegum störfum er kostur
- Gott vald á íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli
- Þekking á Business Central er kostur
- Góð samskiptahæfni
- Mjög góð tölvukunnátta
- Þekking á tollamálum er kostur
- Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
Auglýsing birt4. júní 2025
Umsóknarfrestur18. júní 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Dalvegur 32, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMicrosoft Dynamics 365 Business CentralSjálfstæð vinnubrögðSkipulagÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar