indó sparisjóður 💸
indó sparisjóður 💸
indó sparisjóður 💸

indó leitar að þjónustufulltrúa í framtíðarstarf

Ertu lausnamiðað samskiptaséní sem kann að hugsa út fyrir bankann? Þá gætum við verið að leita að þér!

Við hjá indó erum að leita að margslungnum og metnaðarfullum þjónustufulltrúa í teymið okkar. Við leitum því að áhugasömum orkubolta með menntun og reynslu sem nýtist í starfi, en það er þó engin þörf á að vera bankasérfræðingur, enda erum við ekki banki.

Þjónustuteymi indó sér um allt það sem tengist viðskiptavinum og er starfið því mjög fjölbreytt. Starfið felur í sér að byggja upp tengsl við viðskiptavini með gleði og jákvæðni í fyrirrúmi. Þú munt standa í fremstu víglínu við að veita okkar frábæru viðskiptavinum fyrsta flokks þjónustu í gegnum síma og tölvupóst, ásamt því að vera til staðar fyrir heimsóknir frá viðskiptavinum okkar.

Við hvetjum öll sem vilja taka þátt í að breyta bankakerfinu til að sækja um starfið. Tekið er á móti fyrirspurnum og umsóknum á Alfreð.

Vinsamlega látið ferilskrá og kynningarbréf fylgja með umsókninni.

Helstu verkefni og ábyrgð
Veita okkar frábæru viðskiptavinum fyrsta flokks þjónustu. Svara fyrirspurnum viðskiptavina og veita þeim stuðning við fjölbreytt viðfangsefni. Byggja upp tengsl við viðskiptavini og strá hamingju. Læra allt um indó og verða algjör indói.

Menntunar- og hæfniskröfur
Þjónustulund og drífandi persónuleiki. Samskiptasnillingur sem elskar að leysa vandamál. Gott frumkvæði og óhrædd/ur/tt við áskoranir. Skilningur að á bak við hverja fyrirspurn er manneskja með sína sögu.

Almenn tölvukunnátta og þekking á Zendesk og/eða Asana er kostur.

Viðtöl verða tekin jafn óðum. Því er um að gera að sækja um strax.

Auglýsing birt10. febrúar 2026
Umsóknarfrestur15. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Nóatún 17, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AsanaPathCreated with Sketch.Zendesk
Starfsgreinar
Starfsmerkingar