
Vinnueftirlitið
Hjá Vinnueftirlitinu starfar metnaðarfullur og samheldinn hópur sem leggur áherslu á að ná fram því markmiði að öll komi heil heim úr vinnu.
Við leitumst við að vera fyrirmyndarvinnustaður á sviði vinnuverndar og viljum að fagþekking starfsfólks sé eftirsótt til ráðgjafar í íslensku atvinnulífi. Við störfum saman í fagteymum og höfum skilvirka og vandaða stjórnsýslu að leiðarljósi.
Vinnueftirlitið býður fjölskylduvænt starfsumhverfi, samkeppnishæf starfskjör og tækifæri til að þróast og þroskast í starfi.

Sumarstarf - Þjónustumiðja Vinnueftirlitsins
Viltu ganga til liðs við okkur hjá Vinnueftirlitinu?
Við leitum að sjálfstæðum og drífandi einstaklingi í sumarstarf í þjónustumiðjunni okkar. Um tímabundið starf er að ræða sumarið 2026.
Jákvætt, opið og lausnarmiðað hugarfar eru eiginleikar sem við leitum að.
Um er að ræða 100% starf sem er sinnt frá starfstöð Vinnueftirlitsins í Reykjavík.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þjónustufulltrúar annast móttöku og afgreiðslu fyrirspurna frá viðskiptavinum í gegnum síma, netspjall, tölvupóst og afgreiðslu ásamt því að veita ráðgjöf, sinna skráningu og úrvinnslu beiðna.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdents eða iðnmenntun
- Frumkvæði og framsýni
- Góð hæfni í samskiptum og rík þjónustulund
- Reynsla af vinnuverndar- og öryggisstörfum er kostur
- Góð almenn tölvukunnátta og færni er nauðsynleg
- Góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli er skilyrði
- Reynsla af sambærilegu starfi er æskileg
- Hreint sakavottorð skilyrði
Auglýsing birt6. febrúar 2026
Umsóknarfrestur24. febrúar 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Dvergshöfði 2, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiSamviskusemiÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Verslunarstjóri
Rafkaup

Purchasing Processor / Sérfræðingur í innkaupum
Alvotech hf

FJÖLBREYTT SKRIFSTOFUSTARF
Fjárfestinga- og fasteignafyrirtæki í 101 Reykjavík

Sumarstarfsmaður
Örninn

Viltu starfa í upplýsingatækni?
OK

Starfsfólk óskast í íþróttamiðstöðvar
Íþróttamiðstöðvar Fjarðabyggðar

Akureyri - Sumarstörf í framlínu/Summer jobs in frontline
Iceland Travel

Umsjón áætlunarrúta
Trex Travel Experiences

Sumarstarf á Fyrirtækjasviði BAUHAUS!
BAUHAUS slhf.

Starfsmaður í verslun - Byko Grandi
Byko

Timburafgreiðsla - BYKO Suðurnes
Byko

Söludrifinn viðskiptastjóri
Straumur