

Áhættustýring indó - sérfræðingur í útlánum
Ertu sérfræðingur í útlánum og kannt að hugsa út fyrir bankann?
Útlánastarfsemi indó er í örum vexti og því leitum við að drífandi og kraftmiklum liðsfélaga í áhættustýringateymið okkar til að móta næsta kafla með okkur. Við leitum að einstaklingi með reynslu af lánamálum og góðan skilning á regluverki fjármálafyrirtækja til að þróa og reka útlánaumgjörð indó.
Við leitum að aðila með framúrskarandi samskiptahæfni sem á auðvelt með að vinna þvert á teymi og tryggja góða samvinnu um allt sem snýr að útlánum. Í starfinu felst meðal annars þróun og skjölun ferla, innri og ytri skýrslugjöf, þátttaka í vöruþróun og vinna við uppbyggingu gagnagrunna, kerfa og áhættumatslíkana.
Ef þú vilt starfa í lifandi umhverfi nýsköpunar á fjármálamarkaði þar sem hlutirnir gerast hratt og þú færð tækifæri til að hafa áhrif þá hvetjum við þig til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Anna Guðmundsdóttir, áhættustjóri indó í [email protected]
Umsóknarfrestur er til 20. febrúar 2026.
Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni um flest sem snýr að útlánum, þar með talið þróun og skjölun ferla, innri og ytri skýrslugjöf, þátttaka í vöruþróun og vinna við uppbyggingu gagnagrunna, kerfa og áhættumatslíkana.
Hæfnikröfur:
-
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
-
Starfsreynsla á fjármálamarkaði (sérstaklega útlánum)
-
Reynsla af tækniumhverfi lánakerfa og/eða gagnavinnslu er kostur
-
Góð færni í töluðu og rituðu máli
-
Framúrskarandi samskiptahæfni
Enska
Íslenska