

Iðjuþjálfi í starfsendurhæfingu
Viltu hafa áhrif á líf fólks og styðja það í átt að virkni og þátttöku í atvinnulífi? Birta starfsendurhæfing Suðurlands leitar að metnaðarfullum og drífandi iðjuþjálfa til að ganga til liðs við öflugt teymi í starfsendurhæfingu. Um er að ræða 80-100% starfshlutfall.
· Mat og greining á færni og þörfum einstaklinga í starfsendurhæfingu
· Gerð einstaklingsmiðaðra endurhæfingaráætlana, ráðgjöf, stuðningur og málstjórn.
· Þjálfun í daglegum athöfnum og vinnuferlum
· Samvinna við tilvísandi aðila, aðstandendur, aðra fagaðila og stofnanir
· Ráðgjöf og fræðsla til skjólstæðinga og aðstandenda
· Þekking og færni í að nota matslista sem iðjuþjálfar nota
· Halda utan um hópastarf
· Þátttaka í að efla og innleiða nýjungar í starfi
· Iðjuþjálfamenntun og starfsleyfi á Íslandi
· Þekking og/eða reynsla af málefnum ungs fólks með andlegar hindranir
· Reynsla af starfsendurhæfingu er kostur
· Hæfni í mannlegum samskiptum, sjálfstæði í vinnubrögðum og lausnamiðaðri hugsun
· Góð samskipta- og teymisfærni
· Áhugi á að styðja fólk til aukinnar virkni og þátttöku
· Þekking á IPS hugmyndafræðinni eða áhugi á að tileinka sér hana
· Þekking á Bjargráðakerfinu Björgu og PEERS réttindi kostur
· Gott vald á íslensku og ensku ásamt góðri tölvukunnáttu
· Styrkur til heilsueflingar
· Hvetjandi og faglegt starfsumhverfi
· Tækifæri til símenntunar og þróunar í starfi
· Sveigjanlegur vinnutími og góður starfsandi
· Áhrifaríkt starf þar sem þú getur skipt máli













