
Suðurnesjabær
Suðurnesjabær er framsækið sveitarfélag sem hefur það að leiðarljósi að veita framúrskarandi þjónustu.
Forstöðumaður dagdvalar aldraðra í Suðurnesjabæ
Suðurnesjabær óskar eftir að ráða drífandi, skipulögðum og kraftmiklum einstaklingi í starf forstöðumanns dagdvalar aldraðra. Um er að ræða 100% starf og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Forstöðumaður leiðir faglegt starf dagdvalar aldraðra, þróar og samhæfir innra starf með aukin þjónustugæði að leiðarljósi. Markmiðið dagdvalarinnar er að styðja aldraða einstaklinga til að búa sem lengst á eigin heimilum og að rjúfa félagslega einangrun þeirra. Lögð er áhersla á að viðhalda og örva einstaklinga til bættrar andlegrar, líkamlegrar og félagslegrar heilsu. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem fagleg forysta og þátttaka í daglegri þjónustu við eldra fólk fara saman.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiða og samhæfa faglegt starf dagdvalar með þjónustugæði og vellíðan dvalargesta að leiðarljósi
- Tekur virkan þátt í daglegri þjónustu við dvalargesti eftir þörfum og samhliða stjórnunarhlutverki.
- Dagleg stjórnun og ráðgjöf til starfsfólks
- Umsýsla með mannauðsmálum í samstarfi við yfirmenn
- Eftirlit með skráningum, skjalamálum og upplýsingagjöf
- Yfirumsjón með fjárhagslegri umsýslu, m.a. reikningum, skýrslugerð til Sjúkratrygginga og mati á þjónustu
- Samstarf við aðstandendur, heimahjúkrun, HSS og aðra þjónustuaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
- Viðurkennd heilbrigðismenntun sem veitir starfsleyfi frá embætti landlæknis samkvæmt lögum nr. 34/2012 um heilbrigðisstarfsmenn, t.d. í hjúkrunarfræði, sjúkraliðafræði, iðjuþjálfun, þroskaþjálfun eða félagsráðgjöf.
- Reynsla af störfum í málefnum aldraðra
- Reynsla af sambærilegu starfi og stjórnun
- Jákvæðni, framúrskarandi samskiptafærni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Fagmennska og frumkvæði
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og rit
- Sveigjanleiki og þjónustulund
Auglýsing birt28. maí 2025
Umsóknarfrestur11. júní 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Garðbraut 85, 250 Garður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Þroskaþjálfi eða einstaklingur með sambærilega menntun
Víkurskóli

Aðstoðardeildarstjóri á kvenlækningadeild
Landspítali

Ráðgjafi
Vinakot

Hjúkrunarfræðingar á barnadeild Barnaspítala Hringsins
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild taugasjúkdóma A3 Fossvogi
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur í ung- og smábarnavernd
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Garðabær auglýsir eftir ráðgjafa í málefnum fatlaðs fólks
Garðabær

Hjúkrunarfræðingur á geðlækningastofu (80-100%)
Per mentis

Ert þú kennari? þá er þetta starfið fyrir þig
Leikskólinn Sjáland

Sjúkraliði í dagþjálfun - Maríuhús
Skjól hjúkrunarheimili

Iðjuþjálfi í endurhæfingu
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Aðstoðarkona óskast í sveigjanlegt hlutastarf
NPA miðstöðin