Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús

Húsumsjónarmaður í Hörpu

Harpa er hús í þjóðareigu, listaverk og samkomustaður þar sem ásýnd, umgengni og aðstaða skal vera til fyrirmyndar. Húsumsjónarmaður gegnir lykilhlutverki m.a. með því að tryggja að ásýnd hússins sé ávallt til fyrirmyndar og að allur almennur búnaður hússins uppfylli kröfur, standist skoðun og almenna notkun.

Húsumsjónarmaður hefur umsjón og eftirlit með allri fasteigninni og bílakjallara í Hörpu. Helstu samstarfsaðilar eru stjórnendur og starfsmenn Hörpu, rekstraraðilar, verktakar, fulltrúar viðskiptavina og birgjar.

Starfið krefst daglegrar umsjónar með fasteigninni og búnaði sem er í umsjón fasteignasviðs.

Harpa vill ráða til sín lausnamiðaðan einstakling með góða verkkunnáttu á ýmsum sviðum, sem getur unnið sjálfstætt, með ríka þjónustulund og framúrskarandi samskiptahæfni.

Helstu verkefni og ábyrgð

Samskipti við aðila sem hafa fasta viðveru í húsinu, auk  rekstraraðila Hörpu.

Fylgjast með tæknibúnaði sem tilheyrir fasteigna- og umhverfissviði s.s. lyftum, rúllustigum, vatnsúðakerfum, öryggismyndavélum, neyðarlýsingu, loftræstikerfum og brunastöðvum.

Tryggja að allar hurðir, læsingar og lamir séu í lagi

Skipta um perur og fylgist með loftum auk þess að fylgja eftir viðhaldi og ýmsum frágangi.

Sambærilegt eftirlit með bílastæðahúsi Hörpu.

Önnur þau verkefni sem umsjónarmaður fasteigna og fasteignastjóri felur honum.

Menntunar- og hæfniskröfur

Starfið gerir kröfu um 4-8 ára starfsreynslu á fagsviði starfsins

Hæfni til að lesa úr teikningum

Góð almenn tölvukunnáttu

Hæfni til að tjá sig á íslensku og ensku      

Auglýsing birt28. ágúst 2026
Umsóknarfrestur9. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Austurbakki 2, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar