

Umsjónarmaður fasteigna á Akureyri
Dagar leita að öflugum, skipulögðum og lausnamiðuðum einstaklingi í fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf umsjónarmanns fasteigna. Starfið snýr að daglegum rekstri, viðhaldi og öryggismálum fasteigna, ásamt verkstjórn og samskiptum við eigendur, leigjendur og verktaka.
-
Daglegur rekstur fasteigna, þ.m.t eftirlit með húsnæði, lóðum og tæknikerfum.
-
Gerð viðhalds- og kostnaðaráætlana og eftirfylgni
-
Skipulagning og verkstjórn framkvæmda og tilfallandi sérverkefna
-
Samskipti við eigendur, leigjendur og verktaka
-
Þróun og framkvæmd verklags og fyrirbyggjandi viðhalds fasteigna
-
Bregðast við frávikum og sinna almennu viðhaldi og viðgerðum
-
Umsjón og eftirlit með öryggismálum, s.s. eldvörnum, rýmingum, viðbragðsáætlunum, aðgengi, öryggisgæslu o.fl., og stefnumótun í öryggismálum
-
Tryggja að unnið sé eftir gerðum samningum á milli eigenda, leigjenda, þjónustuaðila og verktaka
-
Reikningasamþykktir og reikningagerð í samstarfi við fjármálasvið
-
Tryggja að fasteignir fylgi settum umhverfisstefnum og veita aðstoð við grænt bókhald
-
Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi, svo sem á sviði byggingariðnaðar, fasteignareksturs eða fasteignaþjónustu
-
Reynsla af verkefnastjórnun
-
Góð þekking á viðhaldi fasteigna
-
Framúrskarandi samskipta- og þjónustuhæfni
-
Góð hæfni í íslensku og ensku í tali og riti
-
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
-
Einstaklingur þarf að vera lausnamiðaður og sýna frumkvæði
-
Góð tölvukunnátta er skilyrði og reynsla af bókhalds-, öryggis-, hússtjórnar- og aðgangsstýrikerfum er kostur
-
Góð þekking á eldvörnum og hæfni til að halda uppi öryggismenningu
Enska
Íslenska


