
Kóraskóli
Kóraskóli er nýr skóli við Vallakór í Kópavogi sem tók til starfa haustið 2023. Í skólanum eru um 280 nemendur í 8. – 10. bekk og um 30 starfsmenn. Skólinn var áður unglingastig Hörðuvallaskóla sem hefur nú verið skipt upp í tvo sjálfstæða skóla. Í skólanum er lögð áhersla á skapandi og framsækið skólastarf og eru allir nemendur skólans með spjaldtölvur. Í námi og kennslu er rík áhersla lögð á einstaklingsmiðun náms, fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, verkefnamiðað nám, samþætt þemanám, teymiskennslu og samkennslu.
Í Kóraskóla er lögð áhersla á að við berum virðingu fyrir hvert öðru sem nemendur, foreldrar og starfsfólk. Öll eiga rétt á að njóta öryggis, vera laus við stríðni, meiðingar, hrekki og einelti. Kóraskóla hefur það að markmiði að skapa nemendum og starfsfólki góðan vinnustað þar sem öll geta notið sín í góðum vinnufriði með hlýlegu andrúmslofti.

Kóraskóli óskar eftir húsverði í 60% starf
Í Kóraskóla eru um 230 nemendur í 8.- 10. árgangi og um 40 starfsmenn. Í skólanum er lögð áhersla á skapandi og framsækið skólastarf og eru allir nemendur skólans með spjaldtölvur. Í námi og kennslu er rík áhersla lögð á einstaklingsmiðun náms, fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, samþætt þemanám, teymiskennslu og samkennslu.
Kóraskóli leitar að metnaðarfullum og þjónustuliprum húsverði. Um er að ræða 60% starf og viðkomandi verður að geta hafið störf sem fyrst. Vinnutími getur verið frá hádegi eða eftir samkomulagi.
Upplýsingar um skólastarfið í Kóraskóla, stefnu hans og helstu áherslur er að finna á heimasíðu skólans www.koraskoli.is
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hefur daglegt eftirlit með húsnæði og þrifum skólans, húsgögnum, áhöldum og lóð.
- Sinnir daglegri verkstjórn skólaliða og skipuleggur störf þeirra við þrif, gæslu, aðstoð í mötuneyti/matsal og önnur dagleg störf.
- Sinnir minniháttar viðhaldi á eignum og búnaði, tilkynnir um frekari viðhaldsþörf, jafnt innanhúss sem utan og á samskipti við eignasvið Kópavogsbæjar.
- Sér um að hiti, lýsing og loftræsting sé fullnægjandi og að öll kerfi starfi rétt.
- Stillir upp fyrir og aðstoðar við stærri fundi eða viðburði í skólanum.
- Sér um að sorp sé flokkað, fjarlægt og lóð þrifaleg.
- Sér um snjómokstur og hálkueyðingu við innganga skólans sem og samskipti við þjónustumiðstöð vegna moksturs/hálkueyðingar á stærri svæðum.
- Sér um innkaup á hreinlætis- og rekstrarvörum og öðru sem snýr að viðhaldi húss og búnaðar.
- Sinnir ýmsum útréttingum fyrir skólann.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Iðnmenntun er kostur.
- Mjög góð almenn verk- og tæknikunnátta.
- Reynsla og þekking sem nýtist í starfi.
- Reynsla af stjórnun verkefna og starfsmannahópa æskileg.
- Þjónustulipurð og góð hæfni í samskiptum við börn og fullorðna.
- Reglusemi, samviskusemi, snyrtimennska, stundvísi og áreiðanleiki.
- Góð skipulagshæfni og sjálfstæði og frumkvæði í starfi.
- Almenn ökuréttindi og þarf að hafa bíl til umráða. Greitt er kílómetragjald vegna sendiferða samkvæmt kjarasamningi.
- Góð færni í íslensku, töluðu og rituðu máli.
Fríðindi í starfi
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang í sundlaugar bæjarins
Auglýsing birt26. ágúst 2026
Umsóknarfrestur6. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Vallakór 14, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)





