
HSE SÉRFRÆÐINGUR
atNorth heldur áfram að stækka á Akureyri og leitar nú að lausnamiðuðum og skipulögðum aðila starf HSE sérfræðings.
Við leitum að einstaklingi með brennandi áhuga á öryggis, umhverfis- og heilbrigðismálum sem vill tryggja að vinnuumhverfið sé ávallt öruggt, faglegt og í samræmi við gildandi kröfur.
Í þessu starfi verður þú lykilaðili í að leiða og innleiða öfluga öryggismenningu innan fyrirtækisins og styðja við sjálfbærni og stöðugar umbætur hjá atNorth á Akureyri.
atNorth er ört vaxandi norrænt fyrirtæki sem sérhæfir sig í rekstri gagnavera með sterka áherslu á sjálfbærni, nýsköpun og að skapa frábæra upplifun á vinnustað.
Um er að ræða framtíðarstarf í fullu starfi sem hentar öllum kynjum.
Ef þú hefur ánægju af því að stuðla að öruggu og heilbrigðu starfsumhverfi og vilt starfa í jákvæðu, alþjóðlegu og vaxandi umhverfi, hvetjum við þig til að sækja um.
- Innleiðing og eftirfylgni með HSE stefnum, ferlum og verklagsreglum í nánu samstarfi við stjórnendur
- Þátttaka í þróun og eflingu samræmds verklags
- Stöðugreiningar, skráning og miðlun upplýsinga um HSE til stjórnenda og hagaðila
- Framkvæmd reglulegs eftirlits, áhættumats og öryggisúttekta auk þess að leiða umbótaverkefni
- Atvikagreiningar, meðferð frávika og markviss innleiðing úrbóta
- Skipulag og utanumahald þjálfunar og fræðslu í öryggis- og neyðarviðbrögðum auk aðkomu að æfingum og viðbragðsáætlunum
- Að fylgjast með og skrá helstu umhverfisþætti starfseminnar og styðja við sjálfbærniverkefni atNorth
- Önnur verkefni í samráði við stjórnendur og samstarfsfólk
- Er lausnamiðaður, skipulagður og með sterka öryggisvitund
- Hefur framúrskarandi samskiptahæfni og á auðvelt með að vinna með fjölbreyttum hópi fólks þvert á teymi
- Hefur reynslu af HSE málum, áhættumati, innleiðingu ferla og rannsókn atvika
- Nýtur þess að vinna markvisst að umbótum og leiða jákvæða breytingu
- Er sjálfstæður í vinnubrögðum, agaður og skipulagður
- Hefur góða færni í íslensku og ensku
- Hefur hreint sakavottorð
- Viðeigandi þjálfun, símenntun og tækifæri til að þróast í starfi
- Heilsumiðað hugarfar með áherslu á jafnvægi milli vinnu og einkalífs
- Íþróttastyrkur til að rækta líkama og sál
- Skemmtinefnd sem heldur stemningunni lifandi
- Veitingaþjónusta á vinnustaðinn
- Fjarskiptapakki og símastyrkur
- Alþjóðlegur vinnustaður með fjölbreytileika og fjölmenningu
Íslenska
Enska



