Verkís
Verkís
Verkís

Hönnuður vega, gatna og stíga

Við leitum að starfsfólki með áhuga á samgöngumannvirkjum inn í öflugan hóp hönnuða sem vinnur að úrlausn fjölbreyttra og spennandi verkefna.

Starfið felur í sér hönnun vega, gatna, göngu- og hjólastíga sem og gerð verklýsinga og útboðsgagna. Verkefnin eru staðsett í þéttbýli og dreifbýli, bæði hér á landi sem erlendis.

Verkís er leiðandi fyrirtæki í BIM upplýsingatækni og er mikið lagt upp úr því að hönnun sé sett fram í þrívídd til að auðvelda samræmingu og þverfaglega samvinnu.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf í umhverfis- og byggingarverkfræði eða byggingatæknifræði
  • Metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Góð skipulags- og samskiptahæfni
  • Mikilvægt að hafa gott vald á íslensku og ensku
  • Reynsla í notkun helstu teikni- og hönnunarforrita s.s. AutoCAD, Civil 3D og/eða Novapoint er kostur
  • Þekking á íslenskum og norskum reglum, stöðlum og handbókum er kostur
Auglýsing birt22. maí 2026
Umsóknarfrestur8. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Ofanleiti 2, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.TæknifræðingurPathCreated with Sketch.Verkfræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar