Hrafnista
Hrafnista
Hrafnista

Hjúkrunardeildarstjóri á Hrafnistu Nesvöllum

Hrafnista Nesvöllum leitar að hjúkrunardeildarstjóra til starfa. Deildarstjóri fer með allan daglegan rekstur á 40 íbúa hjúkrunardeild og er leiðtogi í hjúkrun og þjónustu við íbúa.

Deildin sem um ræðir er glæný og hefur verið vandað til verka í hönnun, skipulagi og velferðartækni.

Við leitum að jákvæðum, lausnamiðuðum og drífandi leiðtoga sem hefur áhuga á að veita framúrskarandi og faglega þjónstu til handa íbúum heimilisins og aðstandendum þeirra.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg stjórnun og rekstur hjúkrunardeildar
  • Skipulag á störfum starfsfólks í samræmi við þarfir þjónustuþega
  • Ábyrgð á faglegri hjúkrun og gæðum í þjónustu
  • Skipulagning og þróun þjónustu í samvinnu við forstöðumann
  • Ráðgjöf, samskipti og fræðsla til íbúa og aðstandenda
  • Þverfagleg teymisvinna innan heimilis og þvert á Hrafnistu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Reynsla af stjórnun kostur
  • Reynsla af RAI mælitækinu kostur
  • Frumkvæði, jákvæðni og faglegur metnaður
  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar
Fríðindi í starfi
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Sími og net greitt af vinnuveitanda
  • Samgöngustyrkur með strætó
  • Virk sí- og endurmenntun 
  • Stuðningur til starfsþróunar í formi leyfa á launum og námstyrkja
  • Við bjóðum upp á jákvæðan og skemmtilegan starfsanda, áhugaverð verkefni og starf sem er í sífelldri þróun.
Auglýsing birt22. júlí 2026
Umsóknarfrestur10. ágúst 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Brúnavegur 13, 104 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar