

Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa hjá Heilsuvernd heilsugæslu
Heilsuvernd heilsugæsla óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing í sitt öfluga teymi. Við leitum að einstakling sem hefur jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi, er sjálfstæður í vinnubrögðum en vill um leið vera hluti af sterku teymi.
Um framtíðarstarf er að ræða í starfshlutfalli á bilinu 80-100% þar sem unnið er á dagvinnutíma.
Heilsuvernd er ört stækkandi fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem hefur sérhæft sig í heilsu- og vinnuverndarstörfum, almennri heilsugæsluþjónustu og heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða.
Heilsuvernd heilsugæsla er skipuð sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem leggur áherslu á faglega og framúrskarandi þjónustu. Við leggjum áherslu á að hafa jákvæð áhrif á lífsgæði fólks og efla heilbrigði og vellíðan. Heilsugæslan Urðarhvarfi býr yfir sérstaklega góðum starfsanda, samvinnu og metnaði starfsfólks og leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi og faglega þjónustu.
- Almenn hjúkrunarstörf; Á hjúkrunarmóttöku er almennum hjúkrunarverkum sinnt sem ekki teljast bráð eins og lyfjagjöfum, bólusetningum, sárameðferðum, saumatökum o.fl. Á hjúkrunarvakt eru bráðum erindum sinnt sem þarfnast aðhlynningar hjúkrunarfræðings samdægurs og eru þau erindi unnin í nánu samstarfi við heimilislækna
- Heilsueflandi móttaka; Eftirlit og ráðleggingar til skjólstæðinga sem glíma við sykursýki, langvinna lungnasjúkdóma eða lífsstílstengdan heilsufarsvanda
- Þátttaka í þróunar- og gæðaverkefnum
- Skipulag, eftirlit og mat á gæðum hjúkrunar
- Próf og starfsréttindi sem hjúkrunarfræðingur
- Þjónustulund og gott viðmót
- Frumkvæði, jákvæðni og samstarfsvilji
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð íslenskukunnátta
- Reynsla af heilsugæsluhjúkrun og/eða skólahjúkrun kostur
Íslenska










