Hrafnista
Hrafnista
Hrafnista

Sjúkraþjálfari í endurhæfingardeild - Hrafnista Laugarási

Hrafnista Laugarási óskar eftir að ráða sjúkraþjálfara í nýja og öfluga endurhæfingardeild.

Við erum að byggja upp framsækna og samþætta endurhæfingardeild og leitum að sjúkraþjálfara sem hefur áhuga á þróun, nýsköpun og þverfaglegri nálgun.

Endurhæfingardeildin samanstendur af sjúkraþjálfurum, iðjuþjálfum, íþróttafræðingum og aðstoðarfólki og þjónustar íbúa og þjónustuþega dagendurhæfingar . Um er að ræða fjölbreytt, þverfaglegt og gefandi starf sem býður upp á mikinn sveigjanleika, öfluga liðsheild og tækifæri á að taka þátt í mótun og þróun nýrrar deildar. Nýr tækjasalur og góð aðstaða. Möguleiki á göngudeildarþjónustu (ambulant).

Um 80-100% starf er að ræða.

Hjá okkur færð þú:

  • fjölbreytt og krefjandi verkefni
  • tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á mótun og þróun þjónustu
  • sveigjanlegt og hvetjandi starfsumhverfi
  • öflugt þverfaglegt samstarf
  • vettvang til að þróa eigin styrkleika og fagmennsku
  • góða starfsaðstöðu og nýjan tækjasal

Sjúkraþjálfun er mikilvægur þáttur í að stuðla að auknum lífsgæðum einstaklinga sem búa við færniskerðingar af einhverju tagi. Markmið endurhæfingardeilda á Hrafnistuheimilunum er að auka og viðhalda lífsgæðum þjónustuþega með fjölbreyttum hætti og finna leiðir til að koma til móts við mismunandi þarfir hvers og eins.

Hrafnista rekur sjö hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Þau eru Laugarás, Sléttuvegur, Skógarbær, Boðaþing, Ísafold, Hraunvangur og Nesvellir.

Markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar og aðrir þjónustuþegar upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk. Hugmyndafræðin er hjartað í starfseminni en samhliða er unnið að verkefnum sem ætlað er að bæta starfsumhverfið og þróa þjónustuna.

Einkunnarorð okkar eru að við vinnum á heimili íbúa, þeir búa ekki á vinnustaðnum okkar -

Hrafnista er símalaust heimili. Með símalausum heimilum leggjum við áherslu á aukið öryggi og bætta þjónustu við íbúa, aðstandendur og aðra þjónustuþega.

Ef þú vilt vinna á vinnustað þar sem áherslur eru m.a. öflugur mannauður, framúrskarandi samskipti, þróun á þjónustu og þar sem nýting og þróun á þjónustueflandi verkfærum eru í brennidepli þá viljum við endilega heyra frá þér.

Nánari upplýsingar veitir Gígja Þórðardóttir deildarstjóri endurhæfingardeildar ([email protected])

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Greining, endurhæfing, þjálfunaráætlanir og skráning
  • Skipulagning endurhæfingar íbúa og þjónustuþega dagendurhæfingar
  • Ráðgjöf og umsóknir á hjálpartækjum
  • Fræðsla fyrir þjónustuþega og starfsfólk
  • Teymisvinna
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari frá Landlæknisembættinu
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð skipulagshæfni
  • Faglegur metnaður
  • Jákvæðni og frumkvæði í starfi
Auglýsing birt10. júlí 2026
Umsóknarfrestur5. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Brúnavegur 13, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar