Vera Sjúkraþjálfun ehf.
Vera Sjúkraþjálfun ehf.

Sjúkraþjálfarar óskast á nýja sjúkraþjálfunarstofu

Við leitum að metnaðarfullum og jákvæðum sjúkraþjálfurum til starfa á nýrri sjúkraþjálfunarstofu sem opnar í byrjun næsta árs. Aðstaða verður fyrir 8 sjúkraþjálfara.

Um er að ræða almenna sjúkraþjálfunarstofu með nýrri og glæsilegri aðstöðu miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu við Smiðjuveg í Kópavogi með góðu aðgengi bæði fyrir starfsfólk og skjólstæðinga. Stofan verður innréttuð sérstaklega fyrir starfsemina áður en hún opnar og því verða allar innréttingar nýjar ásamt öllum tækjum og búnaði.

Stofan verður með rúmgóðan og vel búinn tækjasal með fallegu útsýni yfir Esjuna. Við leggjum áherslu á góða þjónustu, fagmennsku og jákvætt starfsumhverfi og bjóðum upp á mjög hagstæð aðstöðugjöld og góða aðstöðu fyrir sjálfstæðan og fjölbreyttan rekstur.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Öll almenn störf sjúkraþjálfara.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Réttindi frá Embætti landlæknis til að starfa sem sjúkraþjálfari.
  • Góð samskiptahæfni og jákvætt viðmót.
  • Sjálfstæð og fagleg vinnubrögð.
Fríðindi í starfi
  • Hagstæð aðstöðugjöld.
Við bjóðum
  • Nýja og glæsilega aðstöðu á frábærum stað á Smiðjuvegi, með góðum bílastæðamöguleikum.
  • Ný tæki og búnað.
  • Rúmgóðan tækjasal með útsýni yfir Esjuna.
  • Sveigjanlegt starfshlutfall og möguleika á að móta starfið eftir eigin áhugasviði og þörfum.
  • Tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu spennandi starfsumhverfis frá upphafi.
  • Tækifæri til að hafa áhrif á hönnun meðferðarrýma, skipulag aðstöðunnar og val á búnaði ef komið er inn í verkefnið á uppbyggingarstigi.
Umsóknir verða teknar til skoðunar jafnóðum og þær berast og hvetjum við áhugasama til að sækja um sem fyrst.

Fyrir frekari upplýsingar eða ef spurningar vakna, endilega hafðu samband á [email protected]

Auglýsing birt19. júní 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Smiðjuvegur 74, 200 Kópavogur
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar