Lágafellsskóli
Lágafellsskóli
Lágafellsskóli

Frístundaleiðbeinandi í Lágafellsskóla

Ertu að leita af skemmtilegu starfi þar sem engin dagur er eins ?
Við leitum að öflugu og skemmtilegum frístundaleiðbeinendum í Frístundastarf Lágafellsskóla. VIð bjóðum upp á lifandi og fjölbreytt starf með börnum í 1.-4.bekk að loknum skóladegi. Þar gefst tækifæri til að taka þátt í skemmtilegu klúbbastarfi, skemmtilegum valsmiðjum, skapandi verkefnum og fjölbreyttum viðfangsefnum þar sem hugmyndaflug og gleði fá að njóta sín. VIð leitum að jákvæðum og áhugasömum einstaklingum sem hafa gaman af því að vinna með börnum, sýna frumkvæði og vilja stuðla að góðum samskiptum, vináttu og jákvæðri upplifun barna í faglegu frístundstarfi.

Um hlutastarf er að ræða og er vinnutíminn 13:10- 16:00/16:30 á virkum dögum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Undirbúningur fyrir starfsemina hverju sinni og tiltekt að henni lokinni
  • Leiðbeina og tryggja þátttöku barnanna í starfi með styrk þeirra að leiðarljósi
  • Ýta undir leik, sköpun og lýðheilsu
  • Vinna gegn andfélagslegri hegðun og skapa öruggt umhverfi 
  • Leysa úr ágreiningum, leiðbeina samræðum barna, ýta undir vinsemd og styðja börnin í að eiga við tilfinningar sínar
  • Skapa lýðræðislegt umhverfi þar sem börnin eiga kost á því að tjá sig og hafa áhrif á starfsemina
  • Sinna fjölbreyttum hlutverkum eftir þörfum og hæfni
  • Stýra smiðjum,klúbbum, sjá um valstöðvar, fylgja eftir viðveru og mætingu barna
  • Önnur hlutverk sem styðja við og/eða bæta gæði starfsins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Samskipta- og samvinnuhæfni
  • Jákvætt og lausnamiðað hugarfar
  • Sveigjanleiki og hjálpsemi
  • Þolinmæði og umhyggjusemi
  • Hæfni til þess að lesa í aðstæður
  • Tæknilæsi eða vilji til þess að nýta tækni í starfi
  • Hreint sakarvottorð
  • Góð íslenskukunnátta
  • Lágmarksaldur 18 ára (eða að verða 18 ára á árinu)
Fríðindi í starfi
  • Rækt og Lágafellsslaug er við hliðinn á Lágafellsskóla. Afsláttur í World class og frítt í sund fyrir starfsmenn.
  • Samgöngustyrkur

Auglýsing birt20. október 2026
Umsóknarfrestur4. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Lækjarhlíð 1, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.HugmyndaauðgiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar