

Aðstoðarleikskólastjóri vegna afleysingar í 1 ár.
Leikskólinn Tjarnarskógur Egilsstöðum auglýsir til umsóknar tímabundna stöðu aðstoðarleikskólastjóra í 50% starfshlutfalli og 50% kennsla á móti og er starfsstöðin á Skógarlandi. Ráðið er í stöðuna frá 1. desember nk. eða eftir samkomulagi og er ráðningin tímabundin í eitt ár.
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn að taka þátt í að stjórna og leiða gott faglegt starf í lýðræðislegu skólaumhverfi. Í Tjarnarskógi leggjum við áherslu á samvinnu, nýtingu mannauðs og skapandi lausnaleit. Jákvæðni og lipurð í samskiptum eru eiginleikar sem við metum mikils.
Næsti yfirmaður er leikskólastjóri Tjarnarskógar.
Leikskólinn Tjarnarskógur er 9 deilda leikskóli með 160 börn á tveimur starfsstöðvum, Skógarlandi og Tjarnarlandi. Leikskólinn Tjarnarskógur vinnur eftir Uppeldi til ábyrgðar og horfir til fjölgreindarkenningar Howard Gardners í starfsaðferðum sínum.
- Aðstoðarleikskólastjóri er aðstoðarmaður leikskólastjóra og ber ásamt honum ábyrgð á rekstri og faglegu starfi leikskólans
- Er staðgengill í fjarveru leikskólastjóra og starfar þá samkvæmt starfslýsingu hans.
- Vinnur ásamt leikskólastjóra að daglegri stjórnun leikskólans og skipulagningu uppeldisstarfsins.
- Er með starfsstöð á Skógarlandi en annar aðstoðarleikskólastjóri er með starfsstöð á Tjarnarlandi.
- Sinnir þeim verkefnum sem varðar stjórnun leikskólans sem yfirmaður felur honum hverju sinni.
- Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Stjórnunarreynsla í leikskóla mikilvæg
- Reynsla af starfi með börnum
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Áhugi á að vinna með börnum
- Sveigjanleiki, áreiðanleiki og stundvísi
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
- Hreint sakavottorð
Íslenska
Enska










