
Frístundamiðstöðin Bungubrekka
Frístundamiðstöðin Bungubrekka hefur yfirumsjón á skipulagningu og rekstri á því frístundastarfi sem sveitarfélagið ber ábyrgð á og býður upp á. Þar má nefna frístundaheimilið sem er þjónusta fyrir börn í 1.-4. bekk, félagsmiðstöðina sem er þjónusta fyrir börn og unglinga í 5.-10. bekk ásamt skipulögðu frístundastarfi yfir sumartíman fyrir fjölbreytta aldurshópa.

Frístundaleiðbeinandi
Frístundamiðstöðin Bungubrekka leitar að frístundaleiðbeinanda sem brennur fyrir starfi með börnum og ungmennum. Starfið felst í að bjóða upp á fjölbreytt og innihaldsríkt frístunda- og tómstundastarf í öruggu og skapandi umhverfi þar sem frjáls leikur, val og þátttaka eru í fyrirrúmi.
Markmið starfsins er að efla sjálfstraust og félagsfærni barna og tryggja öllum jafna aðkomu að starfi án aðgreiningar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Undirbúningur og framkvæmd frístundastarfs og tiltekt að starfi loknu.
- Leiðbeina börnum og tryggja þátttöku þeirra með styrkleika þeirra að leiðarljósi
- Hvetja til leiks, sköpunar og hreyfingar
- Stuðla að jákvæðu og öruggu félagsumhverfi
- Veita stuðning í samskiptum, úrlausnum ágreininga og tilfinningalegri úrvinnslu
- Stíga inn í fjölbreytt hlutverk eftir þörfum, svo sem að stýra smiðjum eða fylgja eftir viðveru og mætingu
- Skipuleggja minni viðburði, smiðjur og klúbba í samráði við yfirmann
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af starfi með börnum frá 6-9 ára er kostur
- Góð samskipta- og samvinnuhæfni
- Jákvætt og lausnamiðað hugarfar
- Sveigjanleiki og hjálpsemi
- Þolinmæði og umhyggja í starfi með börnum
- Hæfni til að lesa í aðstæður og skapa traust
- Virðing fyrir einstaklingum, skoðunum og upplifun þeirra
- Tæknilæsi eða vilji til að nýta tækni í starfi
- Hreint sakavottorð
Auglýsing birt16. september 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Breiðamörk 27, 810 Hveragerði
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Frístundaleiðbeinendur í Vatnsendaskóla
Vatnsendaskóli

Sérkennsla í leikskólanum Nóaborg
Leikskólinn Nóaborg

Frístundaleiðbeinendur með stuðning óskast á frístundaheimili Tjarnarinnar
Frístundamiðstöðin Tjörnin

Frístundaleiðbeinendur óskast á frístundaheimili Tjarnarinnar
Frístundamiðstöðin Tjörnin

Höfuð-Borgin - sértæk félagsmiðstöð
Höfuð-borgin sértæk félagsmiðstöð

Leikskólakennari/leiðbeinandi í Ægisborg
Leikskólinn Ægisborg

Sérfræðingur í málefnum barna með stuðningsþörf / frístundaleiðbeinandi
Frístundamiðstöðin Bungubrekka

Stuðningsfulltrúi í félagsmiðstöð -Askja
Kringlumýri frístundamiðstöð

Leikskólakennari í Leirvogstunguskóla
Leirvogstunguskóli

Leikskólakennari eða leiðbeinandi í Fögrubrekku
Fagrabrekka

Leikskólakennari í Álfatún - hlutastarf
Álfatún

Óskum eftir kennara í Ævintýraborg við Nauthólsveg
Ævintýraborg við Nauthólsveg