
Samhjálp
Samhjálp félagasamtök er almannaheillafélag sem rekið er án hagnaðarsjónarmiða og með kristileg gildi að leiðarljósi. Tilgangur og markmið félagsins er að veita bjargir til þeirra einstaklinga sem halloka hafa farið í lífinu, vegna sjúkdóma, fátæktar eða annarra samfélagslegra vandamála og stuðla að velferð og sjálfsbjörg þeirra.
Forstöðumaður í Hlaðgerðarkoti
Samhjálp leitar að drífandi forstöðumanni til að leiða öflugt teymi á meðferðarheimilinu Hlaðgerðarkoti.
Hlaðgerðarkot er elsta starfandi meðferðarheimili landsins, staðsett í fallegri náttúru Mosfellsdals. Í Hlaðgerðarkoti starfar reynslumikið teymi áfengis- og vímuefnaráðgjafa, læknis, hjúkrunarfræðings auk annarra sérfræðinga sem hafa sérhæft sig í vinnu með einstaklingum með fíknivanda. Meðferðin byggir m.a. á fræðslu, hópastarfi, einstaklingsviðtölum og sjálfsvinnu þar sem áhersla er lögð á ábyrgð, von og ný tækifæri.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á daglegum rekstri og stjórnun Hlaðgerðarkots
- Stuðla að öflugri liðsheild, góðum samskiptum og heilbrigðu starfsumhverfi
- Ábyrgð á fjárhags- og starfsáætlun
- Ábyrgð á undirbúningi stefnumótunar í samráði við framkvæmdastjóra, þekkingaröflun og þróunarstarfi
- Forstöðumaður er hluti af stjórnendateymi Samhjálpar
- Bera ábyrgð á að þjónusta Hlaðgerðarkots uppfylli lög, reglugerðir um rekstur heilbrigðisþjónustu, faglegar gæðakröfur og stuðlar að virku innra eftirliti og stöðugum umbótum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi og/eða sambærileg og viðeigandi starfsreynsla
- Farsæl stjórnunarreynsla og reynsla af mannaforráðum
- Þekking og reynsla af rekstri
- Þekking og reynsla af velferðarmálum
- Framúrskarandi samskipta- og leiðtogahæfni
- Framsýni, metnaður, skipulagshæfileikar, sjálfstæð vinnubrögð og geta til að vinna undir álagi
- Lausnamiðuð hugsun, frumkvæði og færni til að byggja upp traust og góð tengsl við ólíkt fólk
- Geta samsamað sig gildum og tilgangi starfseminnar
Auglýsing birt8. september 2026
Umsóknarfrestur23. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hlaðgerðarkot
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (10)

Forstöðumaður Markaðslausna - Stafræn þróun og gagnastýring
Íslandsbanki

Hjúkrunardeildarstjóri - Hrafnista Hraunvangi
Hrafnista

Forstöðukona/-maður framkvæmda hjá Veitum
Veitur

Hótelstjóri – Reykjavík Residence Hotel
Reykjavik Residence Apartment Hotel

Forstöðumaður reikningshalds
Ásar

Operations Manager
BusTravel Iceland ehf.

Útibússtjóri Íslandsbanka á Ísafirði
Íslandsbanki

Forstöðumaður Executive MBA náms í viðskipta- og hagfræðideild
Háskólinn í Reykjavík

Við leitum að metnaðarfullum hótelstjóra
Arnarstapicenter

Hjúkrunardeildarstjóri göngudeildar innkirtla- og gigtarsjúkdóma
Landspítali