

Forstöðumaður frístundaheimilisins Bifrastar við Vallaskóla
Forstöðumaður Frístundaheimilisins Bifrastar við Vallaskóla Selfossi.
Sveitarfélagið Árborgar leitar að forstöðumanni fyrir frístundaheimilið Bifröst við Vallskóla á Selfossi. Um er að ræða ótímabundið starf.
Leitað er að reglusömum og áreiðanlegum einstaklingi sem hefur m.a. til að bera frumkvæði, góða samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum. Frístundaheimilið er með sérhúsnæði á skólalóðinni við Vallaskóla. Á frístundaheimilinu er boðið uppá metnaðarfullt og fjölbreytt frístundastarf þegar hefðbundnum skóladegi lýkur.
Mikil uppbygging hefur átt sér stað í Sveitarfélaginu Árborg í frístundamálum síðustu misseri og mikla grósku má finna innan frístundaþjónustu Árborgar. Um er að ræða spennandi og áhugavert starf þar sem er boðið upp á sveigjanlegt og hvetjandi starfsumhverfi.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
- Daglegur umsjón, rekstur og áætlanagerð fyrir frístundaheimilið, þ.m.t. ábyrgð á starfsmannamálum, innkaupum og skipulagning þjónustu staðarins í samráði við notendur, frístunda- og forvarnarfulltrúa og starfsfólk
- Samskipti og samstarf við foreldra, starfsfólk, skóla og aðra samstarfsaðila
- Þátttaka í teymum og þverfaglegu samstarfi innan frístundaþjónustu Árborgar sem og fjölskyldusviði sveitarfélagsins
- Þátttaka í stefnumótun og framtíðarsýn frístundastarfs í sveitarfélaginu
- Háskólamenntun í tómstunda- og félagsmálafræði eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af stjórnun frístundastofnana æskileg
- Áhugi á frístundastarfi skilyrði.
- Starfsreynsla af starfi frístundaheimila æskileg
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Skipuleg og fagleg vinnubrögð
- Almenn tölvukunnátta












