Brynja leigufélag ses.
Brynja leigufélag ses.
Brynja leigufélag ses.

Forstöðumaður fasteignaumsjónar

Brynja leigufélag er eitt stærsta leigufélag landsins með rúmlega 1.100 íbúðir í rekstri. Hlutverk félagsins er að bjóða öruggt, vandað og aðgengilegt húsnæði og tryggja að eignir þess séu vel reknar og þeim vel viðhaldið til framtíðar.

Við leitum að öflugum og lausnamiðuðum aðila til að leiða og samræma viðhalds- og framkvæmdaverkefni fasteigna félagsins. Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem viðkomandi hefur lykilhlutverk í að tryggja gæði, öryggi og góða upplifun leigjenda um leið og verðmæti fasteigna eru varðveitt.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Meta ástand fasteigna með tilliti til viðhalds og endurbóta
  • Dagleg stjórnun hóps iðnaðar- og vaktmanna félagsins
  • Skipulagning og eftirfylgni viðhaldsáætlana
  • Fjárhagsáætlun viðhalds og framkvæmda
  • Samskipti við leigjendur, verktaka og þjónustuaðila
  • Útboð verkefna, tilboðsöflun og samningsumsjón
  • Eftirlit með framkvæmdum, verklokum og gæðum verka
  • Umsjón með kostnaðaráætlunum og framvindu verkefna
  • Þátttaka í þróun verklags og fyrirbyggjandi viðhaldi fasteigna
  • Skráning og utanumhald upplýsinga í rekstrar- og fasteignakerfi félagsins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun eða reynsla sem nýtist í starfi svo sem á sviði byggingariðnaðar, verkfræði, tæknifræði eða fasteignareksturs
  • Reynsla af stjórnun verklegra framkvæmda og framkvæmdaeftirliti
  • Góð þekking á viðhaldi fasteigna og framkvæmdum
  • Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og ábyrgðarkennd
  • Framúrskarandi samskipta- og þjónustuhæfni
  • Hæfni til að vinna sjálfstætt og fylgja verkefnum eftir til loka
  • Góð tölvukunnátta og reynsla af notkun verkefna- og upplýsingakerfa
  • Gott vald á íslensku í tali og riti
Auglýsing birt15. júlí 2026
Umsóknarfrestur10. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hátún 10, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SnyrtimennskaPathCreated with Sketch.Sveigjanleiki
Starfsgreinar
Starfsmerkingar