
Rannsóknasetur verslunarinnar RSV
Rannsóknasetur verslunarinnar er leiðandi þjónustuaðili í hagnýtum greiningum og ráðgjöf fyrir íslenska verslun og neysluhegðun. Við fylgjumst náið með, kortleggjum og greinum bæði eigin og fyrirliggjandi upplýsingar um þróun íslenskrar verslunar, kauphegðun og framtíðarhorfur í verslun sem gerir markaðnum kleift að taka gagnadrifnar ákvarðanir til að bæta samkeppnishæfni og langtíma árangur.
RSV er sjálfseignarstofnun en bakhjarlar þess eru Háskólinn á Bifröst, Menningar- og viðskiptaráðuneytið, Samtök verslunar- og þjónustu og VR.

Forstöðumaður
Leitað er að kraftmiklum og sjálfstæðum aðila sem hefur brennandi áhuga á að vinna að því að efla samkeppnishæfni íslenskrar verslunar og að framfylgja stefnu, markmiðasetningu og framtíðarsýn Rannsóknaseturs verslunarinnar. Um 100% starf er að ræða.
Forstöðumaður ber ábyrgð á daglegum rekstri, verkefnastjórn og heyrir undir stjórn Rannsóknaseturs verslunarinnar.
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi
Reynsla og áhugi á sölu- og markaðssetningu
Mjög góð reynsla af stafrænum miðlum (samfélagsmiðlar, heimasíða og fréttabréf)
Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
Jákvæðni og framúrskarandi samskiptahæfni
Lausnamiðað hugarfar og metnaður til að ná árangri í starfi
Mjög góð hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
Helstu verkefni og ábyrgð
Innleiðing stefnu og lykilaðgerða
Auka vitund og þekkingu á starfsemi setursins
Túlkun gagna um íslenska verslun og miðlun upplýsinga til markaðarins
Þróun og innleiðing áskriftarþjónustu og mælaborðs
Uppbygging og viðhald viðskiptasambanda
Umsjón og ábyrgð á heimasíðu, fréttabréfi og samfélagsmiðlum
Mánaðarlegir stjórnarfundir
Samskipti við fjölmiðla
Fríðindi í starfi
Bifreiðahlunnindi
Auglýsing birt23. apríl 2021
Umsóknarfrestur2. maí 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Suðurlandsbraut 20, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniMetnaðurSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSölumennskaVerkefnastjórnunVinnsla rannsóknargagna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (7)

Hópstjóri á meðferðarheimilið Esju
Barna- og fjölskyldustofa

Bjarmahlíð - ráðgjafi
Bjarmahlíð - miðstöð fyrir þolendur ofbeldis

Störf á meðferðarheimilinu Lækjarbakka
Barna- og fjölskyldustofa

Stuðningsaðili á Velferðarsviði
Velferðarsvið Kópavogsbæjar

Data Scientist / Statistician
Íslensk erfðagreining ehf. (Amgen deCODE Genetics)

Komdu til liðs við okkur á Andrastaði – vantar fólk í aukavinnu
Andrastaðir

Lyfja Reyðarfirði - Forstöðumaður útibús
Lyfja