Lyfja
Lyfja
Lyfja

Lyfja Reyðarfirði - Forstöðumaður útibús

Við leitum að sjálfstæðum og skipulögðum leiðtoga til að halda utan um daglegan rekstur í Lyfju Reyðarfirði. Starfið felst í daglegri verkstjórn, mönnun og utanumhaldi með útibúinu. Viðkomandi tryggir að verklag sé samkvæmt gæðastefnu fyrirtækisins auk þess að ganga í önnur störf tengd ráðgjöf og sölu til viðskiptavina.

Hlutverk og ábyrgð

  • Sér um daglegan rekstur lyfjaútibús
  • Framfylgir gæðastefnu og sinnir eftirliti með starfsemi samkvæmt gæðahandbók
  • Hefur frumkvæði að upplýsingagjöf til lyfsala vegna atriða í rekstri, vegna húsnæðis, afleysinga eða annarra þátta í starfsemi útibúsins
  • Sala og ráðgjöf til viðskiptavina
  • Afhending lyfja gegn lyfseðli
  • Afgreiðsla á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra

Hvaða hæfni þarft þú að hafa?

  • Áreiðanleiki, metnaður og skipulögð vinnubrögð
  • Stjórnunarhæfileikar og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð tölvukunnátta
  • Geta til að starfa undir álagi
  • Reynsla af þjónustustörfum
  • Reynsla af störfum í apóteki er kostur

Um framtíðarstarf er að ræða og vinnutíminn er 11:00-18:00 alla vika daga.

Hvers vegna Lyfja?

Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að auka lífsgæði og efla heilsu. Við rekum 42 verslanir hringinn í kringum landið auk Lyfju Heyrnar og lyfjaskömmtunar. Hjá okkur starfar öflugur hópur heilbrigðismenntaðs og sérþjálfaðs starfsfólks sem styður við viðskiptavini í þeirra heilsueflingu, vinnur að vellíðan og tryggir lyfjaöryggi. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu og stöðuga nýsköpun.

Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Starfsfólk Lyfju nýtur góðra kjara á vörum og þjónustu hjá Lyfju, ELKO, Krónunni og N1, sem öll eru hluti af Festi hf.

Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Jónsdóttir, lyfsali Lyfju Neskaupstað í síma 477-1118 og á [email protected]

Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Auglýsing birt13. október 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hafnargata 2, 730 Reyðarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfgreiðslaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.Vinna undir álagi
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar