

Stuðningsaðili á Velferðarsviði
Stuðningsaðili á Velferðarsviði
Velferðarsvið Kópavogsbæjar leitar að jákvæðu og duglegu starfsfólki til að sinna fjölbreyttri stuðningsþjónustu við einstaklinga, börn, unglinga og fullorðna í daglegu lífi innan og utan heimilis. Markmið þjónustunnar er að efla félagslega virkni notenda, aðstoða með heimilishald, athafnir daglegs lífs og styðja notendur í daglegu lífi á þeirra forsendum og stuðla þannig að valdeflingu notenda.
Um er að ræða starf sem miðar að hvatningu við félagslega þátttöku, tómstundir og uppbyggilega samveru. Hjá börnum og unglingum getur einnig verið um heimanámsaðstoð að ræða og hjá fullorðnum aðstoð við heimilishald og við athafnir daglegs lífs.
Vinnutími á mánuði er frá 8-30 klst, en fer það eftir þörfum hvers einstaklings.
Vinnutími er breytilegur, virkir dagar og helgar, oft eftir kl. 15:00 á virkum dögum en sumir þjónustuþegar hafa þörf fyrir morgun- og eða kvöldtíma.
Um er að ræða tímavinnu.
Helstu verkefni
- Leiðbeina, styðja og hvetja þjónustunotendur í daglegu lífi í samræmi við þjónustusamning og verkáætlun
- Vinnur samkvæmt hugmyndarfræði um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn
- Veita félagslegan stuðning og hvatningu til þátttöku í virkni, tómstundum og uppbyggilegri samveru
- Aðstoða við heimilishald og athafnir daglegs lífs þegar við á, svo sem innkaup, þrif, þvotta og persónulega umhirðu
- Stuðla að sjálfstæði, valdeflingu og vellíðan þjónustunotenda á þeirra forsendum
- Eiga gott samstarf við þjónustunotendur, aðstandendur, næsta yfirmann og aðra samstarfsaðila
- Sinna skráningum og upplýsa næsta yfirmann um breytingar á líðan, heilsufari eða aðstæðum þjónustunotenda
- Önnur verkefni sem að yfirmaður felur starfsmanni og falla undir starfssvið viðkomandi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla eða þekking á stuðnings- og stoðþjónustu er kostur, svo sem reynsla af starfi með börnum, unglingum, fullorðnum, öldruðum eða fólki með fötlun
- Góðir samskiptahæfileikar, þolinmæði og hæfni til að mæta fólki á einstaklingsmiðaðan hátt.
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
- Stundvísi, samviskusemi og áreiðanleiki.
- Jákvæðni og áhugi á að starfa með einstaklingum á öllum aldri.
- Gott vald á íslensku er æskilegt.
- Góð almenn tölvuþekking er kostur.
- Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Allir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Kópavogsbæjar við ráðningar.
Þau sem ráðin eru til starfa hjá velferðarsviði Kópavogs þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga af sakaskrá og hafa hreint sakarvottorð.
Upplýsingar um starfið veitir Tara Lind Jónsdóttir á netfanginu: [email protected]
Tekið er við umsóknum í starfið í gegnum ráðningarvef Kópavogsbæjar.
Íslenska










