
Samhjálp
Samhjálp var stofnað árið 1973 og hefur því starfað í rúma hálfa öld. Samhjálp rekur fimm starfsstöðvar en um 30 einstaklingar starfa hjá félaginu ásamt nokkrum fjölda sjálfboðaliða.
Stærsta starfsstöðin og jafnframt sú elsta, er meðferðarheimilið Hlaðgerðarkot í Mosfellsdal en þar er pláss fyrir um þrjátíu einstaklinga í meðferð hverju sinni. Samhjálp rekur tvö áfanga- og stuðningsheimili fyrir átta karlmenn hvort, annað í Reykjavík og hitt í Kópavogi. Kaffistofa Samhjálpar sem er opin alla daga ársins og er í Borgartúni í Reykjavík. Skrifstofa Samhjálpar, sem er þjónustumiðstöð félagsins og miðstöð fjáröflunar, er í Skútuvogi 1g.

Ráðgjafi í áfengis- og vímuefnameðferð óskast í Hlaðgerðarkot
Samhjálp óskar eftir að ráða ráðgjafa í 100% starf á meðferðarheimilinu Hlaðgerðarkoti í Mosfellsdal. Ráðgjafinn mun sinna karlahópi í meðferð.
Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að styðja fólk á batavegi og vill leggja sitt af mörkum til faglegs og einstaklingsmiðaðs meðferðarstarfs.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stuðnings- og ráðgjafarviðtöl við skjólstæðinga innan ramma meðferðarstarfsins.
- Skipulagning og stjórnun hópastarfs í samráði við fagteymi.
- Þátttaka í mati á stöðu og meðferðarþörf skjólstæðinga í samvinnu við fagteymi.
- Fræðsla og fyrirlestrar fyrir skjólstæðinga.
- Gerð útskriftaráætlana í samvinnu við skjólstæðinga og eftir atvikum aðra fagaðila.
- Skráning upplýsinga um meðferð og framgang skjólstæðinga.
- Þátttaka í þverfaglegu teymisstarfi og samstarf við aðra fagaðila eftir því sem við á.
- Vikuleg hópeftirfylgni og stuðningsviðtöl með útskrifuðum skjólstæðingum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Viðeigandi menntun sem nýtist í meðferðar- og ráðgjafarstarfi.
- Reynsla af meðferðarstarfi eða sambærilegum störfum er skilyrði.
- Starfsleyfi sem áfengis- og vímuefnaráðgjafi er kostur.
- Góð samskipta- og samstarfshæfni.
- Sjálfstæði, frumkvæði og ábyrgð í starfi.
- Umhyggja og virðing í samskiptum við skjólstæðinga og samstarfsfólk.
- Hæfni og vilji til að starfa í samræmi við gildi, markmið og faglega nálgun Samhjálpar.
- Umsækjandi verður að hafa hreint sakavottorð
Umsóknarfrestur og nánari upplýsingar
Umsóknarfrestur er til og með 15. nóvember. Umsókn ásamt ferilskrá og kynningarbréfi skal senda á [email protected].
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Fossdal, Forstöðumaður í Hlaðgerðarkoti, á [email protected].
Auglýsing birt28. október 2026
Umsóknarfrestur15. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hlaðgerðarkot 124721, 271 Mosfellsbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar



